Mikil traffík í iðnaðarráðuneyti
„Erlend nýfjárfesting er okkur mjög mikilvæg núna og það eykur mér bjartsýni að í ráðuneytinu hefur aldrei verið jafn mikil traffík af aðilum sem horfa til okkar sem staðsetningarkosts, “ sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra við utandagskrárumræður um atvinnumál á Alþingi í morgun.
Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki var málshefjandi í umræðunum. Hún benti m.a. á að óvissa væri um framboð orku og umhverfismatsferlið væri óljóst. Þetta hefði leitt til þess að fjárfestar hafi horfið frá með stórverkefni.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði gríðarlega mikilvægt að framkvæmdir fari af stað við Búarhálsvirkjun. Rætt væri um aðkomu lífeyrissjóða í stöðugleikaviðræðunum í Karphúsinu
Hún sagði að framkvæmdir væru hafnar við húsnæði undir netþjónabú Verne Holding í Reykjanesbæ. Undirritað hefði verði samkomulag við aðstandendur sólarkísilverksmiðju í Helguvík. Síðar á árinu væri að vænta ákvörðunar um hvort ráðist verður í byggingu hreinkísilverksmiðju. Í seinustu viku hafi svo fulltrúar fyrirtækisins Greenstone ásamt mjögt stórum bakhjarli skoðað Blönduós, Egilsstaði og fleiri staði í leit að mögulegri staðsetningu fyrir stórt netþjónabú. „Líklega eitt það stærsta sinnar tegundar,“ sagði Katrín.
Katrín sagði að margar góðar fréttir væru að berast í atvinnumálum. Vísbendingar væru komnar fram um að takast muni að skapa fleiri ársverk í byggingariðnaðinum en gert var ráð fyrir í atvinnuátaki ríkisstjórnarinnar, sem miðað við að til yrðu 1.700 ársverk.
Katrín sagði einnig að nú störfuðu 8 frumkvöðlasetur um land allt. Þá hafa 14 sveitarfélög staðfest þátttöku í samstarfsverkefni Skógrætkarfélagi Íslands, samgönguráðuneytis og sveitarfélaga og þar væri um 312 störf að ræða.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Gríðarlegur endurnýjunarþróttur í atvinnulífinu
- Þriðjudagur, 29. júní 2010, Innlent Ræddi drekasvæðið í Kína
- Mánudagur, 29. júní 2009, Innlent Konur í minnihluta stjórnenda
- Miðvikudagur, 13. maí 2009, Innlent Að aflétta leynd gæti reynst tvíbent
- Þriðjudagur, 10. nóvember 2009, Innlent Brjáluð leið - ekki blönduð
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































