Óskar eftir rannsókn á lánum

Vilhjálmur Bjarnason lektor og framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.

Vilhjálmur Bjarnason lektor og framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.

mbl.is Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is

Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og lektor við Háskóla Íslands, hefur farið þess á leit við embætti sérstaks saksóknara að það rannsaki viðskipti Landsbankans og Glitnis við Árvakur hf., þá sérstaklega kaup Björgólfs Guðmundssonar og Ólafs Jóhanns Ólafssonar á hlutabréfum í Árvakri.

Viðskipti bankanna við Árvakur og fyrrverandi eigendur félagsins, sem Vilhjálmur hefur óskað eftir að verði rannsökuð, fóru fram á árunum 2006 til 2008. Nýir eigendur tóku við rekstri Árvakurs, og þar með mbl.is og Morgunblaðsins, nú á vormánuðum eftir að hafa átt hæsta boð í félagið þegar það var selt af Íslandsbanka. Viðskipti banka við þá tengjast beiðni Vilhjálms ekki með neinum hætti.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti í samtali við mbl.is að bréf frá Vilhjálmi hefði borist embættinu þar sem óskað væri eftir rannsókninni. Málið væri á frumstigi og til athugunar hjá embættinu.

Tveir þættir verði rannsakaðir

Vilhjálmur óskar sérstaklega eftir því að rannsóknin á bönkunum tveimur beinist að tveimur þáttum. Þetta gerir hann sem fyrrverandi hluthafi í fyrrnefndum bönkum. Orðrétt segir í bréfi Vilhjálms til saksóknarans.

„1. Lánveitingum þessara tveggja banka til Árvakurs hf., sem leiddu til tapaðra útlána fyrir þessar stofnanir að fjárhæð u.þ.b. 3-4 milljarðar. Meðal þessar útlána er lán Landsbankans án nokkurra trygginga en með fyrirhuguðum breytirétti í hlutafé án þess að það hafi verið samþykkt í stjórn Árvakurs hf. áður en lánið var veitt. Ástæða er til að athuga hvernig ferli þessarar lánveitingar var hjá lánanefnd Landsbankans, þ.e. frá umsókn til afgreiðslu með kostgæfniathugun þar á milli.

2. Að rannsakað verði hvort kaup fyrrnefndra tveggja einstaklinga í gegnum eignarhaldsfélög þeirra hafi verið fjármögnuð með lánveitingum til eignarhaldsfélaganna frá Landsbankanum þar sem Björgólfur Guðmundsson var aðalhluthafi í gegnum félag sitt, Samson Holding, og að lánveitingar vegna þessara viðskipta hafi verið án nokkurra trygginga nema hugsanlega aðeins með handveði í hlutabréfum Árvakurs hf. og að útlánin séu lánastofnunum.“

Vilhjálmur óskar eftir því að það verði athugað hvort lánveitingar Landsbankans, og eftir atvikum annarra banka, hafi verið með þeim hætti að fyrirséð hafi verið að lánveitingarnar hafi verið með svo óábyrgum hætti að andvirði lánanna myndi tapast „og því flokkist undir umboðssvik samkvæmt ákvæðum hegningarlaga eða önnur ákvæði,“ eins og orðrétt segir í bréfi Vilhjálms.

Sérstaklega er vitnað til tveggja lagaákvæða í bréfinu, sem bankar hafi mögulega hafi brotið gegn. Það eru eftirfarandi lagagreinar:

249. gr. Ef maður, sem fengið hefur aðstöðu til þess að gera eitthvað, sem annar maður verður bundinn við, eða hefur fjárreiður fyrir aðra á hendi, misnotar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum, og má þyngja refsinguna, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fangelsi.

19. gr. Góðir viðskiptahættir og venjur.
Fjármálafyrirtæki skal starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði.

Björgólfur Guðmundsson.

Björgólfur Guðmundsson. Sverrir Vilhelmsson

Ólafur Jóhann Ólafsson, var um tíma hluthafi í Árvakri.

Ólafur Jóhann Ólafsson, var um tíma hluthafi í Árvakri. mbl.is/Einar Falur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hamraborg útsýnisskrifstofuhúsn. 4. hæð
Til leigu gott skrifst.húsnæði ca 25 fm. Laust strax. Lyftuhús. Næg bílastæði. S...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Ljós microfiber sófi til sölu
Hef til sölu ljósan 3ja sæta sófa úr microfiber efni. Hann er 197 cm á lengd, of...
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...