Staðið verði við kjarasamninga

Mikil eining ríkti á fundi formanna aðildarfélaga ASÍ um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld að því er segir í frétt frá ASÍ fundinum lauk nú síðdegis. Áehrsla var lögð á að verja gildandi kjarasamninga sem felur í sérr að laun hækki 1. júlí.

 Á fundinum var samþykkt tillaga mótatkvæðalaust þar sem lýst var fullum stuðningi við forystu og samninganefnd ASÍ sem nú fundar linnulítið í Karphúsinu.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fór yfir stöðuna í viðræðum við SA og stjórnvöld og Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, reifaði drög að nýrri hagspá.  „Báðir drógu þeir upp afar dökka mynd af ástandinu.  Að loknum erindum þeirra var orðið gefið frjálst og tjáðu fjölmargir sig um stöðuna.  Eindregin vilji virtist vera fyrir því að reyna verja gildandi kjarasamning [...],“ segir í frétt ASÍ.

Á fundinum var eftirfarandi tillaga samþykkt mótatkvæðalaust: „Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við forystu og samninganefnd ASÍ í þeim erfiðu og viðkvæmu viðræðum um stöðugleikasáttmála og framlengingu kjarasamninga á vinnumarkaði, sem nú standa yfir.  Fundurinn hvetur samningsaðila til að verja innihald gildandi samninga með öllum tiltækum ráðum.“

Gylfi sagði í samtali við mbl.is að miklar væntingar væru hjá félagsmönnum aðildarfélaganna um að gildandi kjarasamningur komi til framkvæmda. „Eins og fram kom í lok seinustu viku, þá eru menn tilbúnir að ræða við SA um afborgunarskilmálana, eða dreifa launahækkunum að einhverju leyti. Við stóðum þá frammi fyrir því að SA ætlaði að fara frá þessum viðræðum vegna vaxtaágreiningsins en okkur tókst að ná saman um að skynsamlegra væri að halda áfram og freista þess búa til aðstæður svo vextir gætu lækkað,“ segir Gylfi.

Hann segir áherslu lagða á það í viðræðum við ríkisstjórnina að skynsamlegast væri að fá allan pakkann upp á borðið með þeim aðgerðum sem ráðast á í bæði á þessu ári og til lengri tíma litið.

Gylfi segist vona að lögð verði mikil vinna í viðræðurnar í Karphúsinu yfir helgina og alla næstu viku. Engar dagsetningar hafi verið ákveðnar um hvenær niðurstaða í viðræðunum um stöðugleikasáttmála eigi að liggja fyrir. „Því fyrr, því betra. Það er nauðsynlegt að fá heildaraðgerðina upp svo Seðlabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geti komið efnislega að málinu og sagt þá hvort þetta er trúverðugt. Og ef menn finna leið til að flýta aðlögunaraðgerðunum, þá náum við að skapa meiri trúverðugleika svo hægt sé að fara niður með vextina bæði fyrr og meira. Þetta er ekki bara spurning um framlengingu kjarasamningsins, heldur er þetta spurning um framtíð þjóðarinnar. Ef þetta vaxtastig verður svona hátt áfram sé ég ekki annað en að það verði hrun hér á landi í haust,“ segir Gylfi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hamraborg útsýnisskrifstofuhúsn. 4. hæð
Til leigu gott skrifst.húsnæði ca 25 fm. Laust strax. Lyftuhús. Næg bílastæði. S...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
Ljós microfiber sófi til sölu
Hef til sölu ljósan 3ja sæta sófa úr microfiber efni. Hann er 197 cm á lengd, of...
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...