Ríkissaksóknarinn hyggst ekki víkja
Valtýr Sigurðsson
eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is
Valtýr Sigurðsson segist ekki hafa hugleitt að segja af sér embætti ríkissaksóknara. Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði í Kastljósi sjónvarpsins í fyrrakvöld að það væri ekki nægilegt að Valtýr viki að hluta, hann yrði að víkja alfarið.
Valtýr ritaði Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra bréf 18. maí sl., þar sem hann segir rétt að hann víki tímabundið, til að byrja með til 1. júní 2010, í öllum málum sem heyra undir embætti sérstaks saksóknara. Þetta gerði Valtýr vegna þess að Sigurður sonur hans er annar forstjóra Exista hf. „Ríkissaksóknara er mikið í mun að hið nýstofnaða embætti sérstaks saksóknara njóti fulls trausts og að sjálfstæði þess sé hafið yfir allan vafa,“ segir Valtýr m.a. í bréfinu.
Dómsmálaráðherra brást við bréfinu með því að fela Birni Bergssyni hæstaréttarlögmanni að gegna hlutverki ríkissaksóknara í málum sem heyra undir Ólaf Þór Hauksson, sérstakan saksóknara. Til þess þarf lagabreytingu. Það var niðurstaða ráðuneytisins og sérfræðinga að ríkissaksóknari gæti ekki að óbreyttum lögum vikið sæti á grundvelli vanhæfis í einum málaflokki, heldur einungis á grundvelli einstakra mála. Þá verður lagt til að tilkynningaskylda rannsóknarnefndar Alþingis fari ekki til ríkissaksóknara.
Valtýr Sigurðsson kveðst ekki sjá hvernig Eva Joly, sem ráðgjafi sérstaks saksóknara, tengist málum hans embættis eftir að hann hafi hætt öllum formlegum afskiptum af málum sem snúa að embætti sérstaks saksóknara. „Ég hef verið að berjast fyrir því að byggja upp ákæruvaldið í landinu en það hefur skort til þess peninga,“ segir Valtýr. Hann segir að það séu vandamál alls staðar og það verði að hafa í huga að verkefni ákæruvaldsins í landinu snúi ekki bara að bankamálum. Valtýr sagði að kröfur Evu Joly væru óljósar og hann sæi ekki tilganginn í því að verða við þeim.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Bloggað um fréttina
-
Helga Dögg Sverrisdóttir Missir trúverðugleika -
Ólafur Eiríksson Eins og skessan í gatinu -
Heiða B. Heiðars Verðum við ekki bara að hjálpa honum að hætta? -
Elín Guðlaug Hólmarsdóttir Þori að veðja við ykkur að þetta sé SJÁLFSTÆÐISMAÐUR!!!! -
Reynir W Lord Davíð syndrome.... ég vil. -
Jenný Anna Baldursdóttir Jösses á galeiðu -
Þórkatla Snæbjörnsdóttir Valtýska í nýrri mynd.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Hefur ekki hugleitt að segja af sér
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Eva Joly er dínamítkassi
- Föstudagur, 12. júní 2009, Innlent Valtýr vill ráða Evu Joly
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Sérstakur saksóknari óháður ríkissaksóknara?
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Segir saksóknurum verða fjölgað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































