Aðbúnaður fanga ekki nógu góður

Aðbúnaður fanga ekki nægjanlega góður. Tvímennt í tveimur klefum. Aldrei hafa jafn margir setið í gæsluvarðhaldi.

Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla Hrauni, segir í viðtali við RÚV að í það heila tekið sé aðbúnaður fanga ekki nægjanlega góður. Hún segir nauðsyn á fjölbreyttari úrræðum fyrir fanga sem eru að taka út refsidóma, svo sem opnum fangelsum.

Á meðan fangelsin eru full er ekki hægt að boða þá sem hlotið hafa refsidóma til afplánunar, en hátt í 200 eru nú á boðunarlista Fangelsisstofnunar.  Þar á meðal menn sem hlotið hafa þunga dóma vegna alvarlegra ofbeldisbrota.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert