Einar fékk gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar
Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans. mbl.is
Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fékk fyrir helgi gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar (European Academy of Ophthalmology). Þetta var tilkynnt á fundi akademíunnar í Amsterdam á föstudag. Um leið var Einar tekinn sem meðlimur í akademíuna en hún telur 48 evrópska augnlækna og vísindamenn. „Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag, Háskóla Íslands, Landspítalann og Einar sjálfan,“ segir í frétt frá Háskóla Íslands.
Í tilkynningu frá HÍ segir að rannsóknir Einars á forvörnum gegn blindu í sykursýki hafi vakið athygli víða um heim. Einnig að rannsóknir hans á sviði súrefnisefnaskipta augans hafi vakið mikla athygli þar sem leitað er skýringa á því hví leiser meðferð er hjálpleg í augnsjúkdómi í sykursýki og æðalokunum.
„Rannsóknir Einars og Jóns Atla Benediktssonar, prófessors við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hafa verið til umfjöllunar víða um heim en þeir tveir hafa í félagi við aðra þróað súrefnismæli fyrir augnbotna sem getur tryggt meðferð við augnsjúkdómum fyrr en áður var kleift. Sprotafyrirtækið Oxymap var stofnað til þróa áfram lausnir sem tengjast þessum rannsóknum þeirra.
Þá hefur augnlyfjaþróun Einars Stefánssonar og Þorsteins Loftssonar, prófessors í lyfjafræðideild HÍ, einnig vakið mikla athygli enda opnar sú þróun þeirra möguleika á nýrri og frumlegri meðferð við augnsjúkdómum. Sprotafyrirtækið Oculis hefur verið stofnað um áframhaldandi þróun sem tengist rannsóknum þeirra Einars og Þorsteins.
Einar Stefánsson fékk fyrir tæpu ári hin virtu Jules Gonin verðlaun sem eru veitt annað hvert ár þeim einstaklingum í heiminum sem þykja hafa staðið sig öðrum framar í augnrannsóknum og lækningum, sérstaklega á sviði sjónhimnusjúkdóma,“ segir í frétt frá Háskóla Íslands.
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Halldór Einarsson Til hamingju Einar -
Jakob Falur Kristinsson Heiðraður -
Magnús Geir Guðmundsson Fagnaðarefni! -
Hilmar Snorrason Frábær árangur
Innlent »
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. október 2009, Innlent Íslenskur gítarstillir slær í gegn
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Sjö doktorar fá styrk úr Eggertssjóði
- Föstudagur, 5. september 2008, Innlent Háskólanám hafið hjá Keili
- Þriðjudagur, 13. janúar 2009, Innlent Andlát: Margrét Oddsdóttir
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Bækur í bland við kjöt
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































