Þingflokkur VG hvattur til að beita sér gegn aðildarviðræðum

Svæðisfélag Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði hefur sent frá sér ályktun þar sem segir að endurreisn íslensks samfélags brýnni en aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá er minnt á samþykktir og yfirlýsingar flokksins fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem Evrópusambandsaðild er alfarið hafnað.  

Ályktunin fer í heild sinni hér á eftir: 

„Félag vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði minnir á samþykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem alfarið er hafnað Evrópusambandsaðild og ítrekað að hagsmunum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins.

VG er eini flokkurinn sem á sæti á alþingi sem hefur frá upphafi talað skýrt í þessum efnum. Því skorar félagið á þingflokk VG að beita sér gegn því að frekari skref verði stigin í átt til Evrópusambandsaðildar og hafna þingsályktunartillögu Samfylkingarinnar um aðildarviðræður. 

Á þeim mánuðum sem liðnir eru frá hruni íslensks efnahagslífs hafa alþingismenn og stjórnvöld nú þegar sóað of miklum tíma og orku í umræðu um Evrópusambandsaðild og hefur það komið niður á öðrum og brýnni verkefnum til samfélagslegrar endurreisnar.

Á sama tíma og til stendur að fara í sársaukafullan niðurskurð á fjárveitingum til grunnstoða íslensks samfélags og velferðarþjónustu skýtur það skökku við ef hluti fjármuna sem þannig eru sparaðir verða notaðir til að fjármagna mjög kostnaðarsamar aðildarviðræður."  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert