Segir Norðurlönd styðja ESB-umsókn Íslands

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. mlb.is/Eggert

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði eftir fund forsætisráðherra Norðurlandanna á Egilsstöðum í gærkvöldi, að umsókn frá Íslandi um aðild að Evrópusambandinu myndi njóta stuðnings hinna Norðurlandanna.

Fréttaveitan Bloomberg hefur eftir Jóhönnu, að hugsanleg umsókn Íslands hafi verið rædd á fundi forsætisráðherranna og fengið afar jákvæðar undirtektir.  Þrjú Norðurlönd, Danmörk, Finnland og Svíþjóð eru aðilar að Evrópusambandinu en Ísland og Noregur ekki.

Íslenska ríkisstjórnin lagði nýlega fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að sækja skuli um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan er til meðferðar í utanríkismálanefnd þingsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert