Vilja gera landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku
Dæmi eru um að 1800 manns hafi verið á Hakinu ofan við Almannagjá á Þingvöllum á sama tíma, sérlega þegar skemmtiferðaskip eru í Reykjavíkurhöfn.
Þetta kemur m.a. fram í greinargerð með þingsályktunartillögu, sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, hefur lagt fram á Alþingi ásamt þingmönnum úr öllum flokkum. Þar er lagt til að gerð verði landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku á miðhálendinu þannig að unnt sé að taka vel á móti þeim aukna fjölda ferðamanna sem ferðast um hálendið án þess að ganga of nærri því.
Siv segir, að svara þurfi ýmsum grundvallar spurningum, svo sem hvernig ferðamanna Íslendingar vilji höfða til og hver eigi að borga fyrir uppbyggingu innviða á ferðamannasvæðum, svo sem stíga, salerna, útsýnispalla o.s.frv.
Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu, að nokkrar leiðir hafi verið til umræðu í þessu sambandi. Þær séu að leggja lögbundið gjald á fyrirtæki í ferðaþjónustu, innheimta aðgangseyri af ferðamönnum á einstökum svæðum, leggja gistináttagjald á hverja gistinótt, nýta hluta veggjaldsins eða lögbinda gjald sem yrði tekið af ferðamönnum og innheimt við brottför úr landi. Er nefnt í því sambandi að 400 króna gjald á hvern ferðamann gæfi um miðjan næsta áratug um 400 milljónir króna í aðra hönd ef spár um fjölda ferðamanna ganga eftir.
Siv segir, að erlendum ferðamönnum hafi fjölgað mikið síðustu áratugi hér á landi og þótt reiknað sé með smávægilegri fækkun á þessu ári megi búast við að Íslendingar muni ferðast meira um landið í ár en venjulega. Á síðasta ári sóttu um 502 þúsund erlendir ferðamenn landið heim og búast megi við að yfir ein milljón erlendra ferðamanna sæki landið heim árið 2016 eða fljótlega upp úr því.
Grundvallaratriði sé að vinna landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku, sérstaklega á miðhálendinu svo hægt sé að taka á móti auknum fjölda ferðamanna án þess að skemma viðkvæma náttúru eða upplifun ferðamannanna.
Bloggað um fréttina
-
Anna Karlsdóttir Löngu kominn tími til -
Ómar Ragnarsson Þarf ekki að finna upp hjólið.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. júní 2009, Innlent Færri ferðamenn en eyða meiru
- Föstudagur, 24. júlí 2009, Innlent Gestir skrifa nafn sitt á Spákonufellshöfða
- Laugardagur, 7. júní 2008, Innlent „Stór áfangi í náttúruvernd"
- Miðvikudagur, 2. júlí 2008, Innlent Aðgangur að Kerinu í Grímsnesi takmarkaður
- Miðvikudagur, 30. júlí 2008, Innlent Þurfa að þola saklausa för um lönd sín
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































