EES-samningurinn verði ekki vanræktur

Samtök atvinnulífsins hafa skilað utanríkismálanefnd Alþingis umsögn um þingsályktunartillögur um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Segja samtökin að stjórnvöld megi ekki glata metnaði sínum um áframhaldandi þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu eins og hafi gerst á undanförnum árum.  Slíkt geti reynst íslensku atvinnulífi dýrkeypt. 

Undirstrikað er í álitinu, að skiptar skoðanir séu innan Samtaka atvinnulífsins um aðild Íslands að ESB og áréttað að SA muni gæta hagsmuna allra aðildarfélaga á grundvelli þess. 

Umsögn SA

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert