Fréttaskýring: Færri ferðamenn en eyða meiru

Erlendir ferðamenn í Reykjavík. stækka

Erlendir ferðamenn í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

mbl.is Eftir Ylfu Kristínu Árnadóttur

Endurgreiðsla virðisauka í maí sl. jókst um 91,5% milli ára samkvæmt upplýsingum frá Global Refund á Íslandi. Á sama tíma fækkaði erlendum gestum um 1.400 samkvæmt mælingum sem Ferðamálastofa gerði í Leifsstöð. Að sögn Árna Gunnarssonar, stjórnarformanns Samtaka ferðaþjónustunnar, er því ljóst að sérhver ferðamaður verslar talsvert meira hér á landi en áður. Þar er veiking krónunnar án efa helsta orsökin.

Hópurinn tekið breytingum

Að sögn Árna hefur ferðamannahópurinn tekið talsverðum breytingum síðustu árin. Annars vegar ferðast fólk síður í hópum og frekar á eigin vegum og hins vegar hefur bókunarfyrirvarinn styst, þ.e.a.s. tíminn frá því ákvörðun um ferðalag er tekin og þar til ferðalagið hefst. Árni segir að fjölgun einstaklingsferðanna megi rekja til þess að fólk leiti sér frekar upplýsinga um landið og bóki gistingu og ferðir á síðum veraldarvefjarins og treysti sér þannig betur til að ferðast á eigin vegum.

Hvað bókunarfyrirvarann varðar segir Árni að ákveðin óvissa sé um hagi fólks. Það sé óvisst um hversu miklum fjármunum það hafi úr að spila og taki því ákvarðanir um sumarfríið sitt með skemmri fyrirvara en áður.

Fleiri Íslendingar mæta í hvalaskoðanir

Þegar haft var samband við tvö hvalaskoðunarfyrirtæki, Norðursiglingu á Húsavík og Eldingu í Reykjavíkurhöfn, og þau spurð um breytingar síðustu árin fengust sömu svör og hjá Árna. Einstökum ferðamönnum á eigin vegum hefði fjölgað á kostnað hópa auk þess sem þeir bókuðu með skemmri fyrirvara en áður. Þá var nefnt að svo virtist sem fleiri Íslendingar kæmu í hvalaskoðun og mætti rekja fjölgunina til þess að færri ætluðu að eyða sumarfríinu sínu erlendis og kysu því að ferðast innanlands og mæta í ferðir sem erlendir ferðamenn mæta alla jafna í. Töluvert dýrara er þó fyrir Íslendinga að mæta nú í hvalaskoðun en fyrir ári þar sem Norðursigling og Elding eru með gjaldskrá sína í evrum. Gjaldið er 45-48 evrur og hefur haldist óbreytt í nokkurn tíma.

Miðbærinn og landsbyggðin

Þótt ferðamönnum um Leifsstöð hafi fækkað lítillega er gert ráð fyrir svipuðum fjölda ferðamanna með skemmtiferðaskipum í Reykjavík í sumar. Fyrsta skipið kom um miðjan maímánuð og er von á um 50 skipum í 80 heimsóknum allt til 1. október. Að sögn Árna hafa farþegar skipanna takmarkaðan tíma og stendur þeim til boða að fara í skoðunarferðir á vinsælustu ferðamannastaðina, s.s. Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Bláa lónið. Að auki hefur verið staðið sérstaklega fyrir ferðum í miðbæinn til að auðvelda þeim að komast í verslun og þjónustu en hver farþegi verslar að jafnaði fyrir 6.300 kr. í Reykjavík.

Hringurinn heillar

FERÐASKRIFSTOFAN Atlantik sérhæfir sig m.a. í því að taka á móti farþegum skemmtiferðaskipa og ferðast með þá víðs vegar um landið. Að sögn Gunnars Rafns Birgissonar, framkvæmdastjóra Atlantiks, eru um 50 mismunandi ferðir í boði en þegar fólk sé að koma í fyrsta skipti til landsins fari það í hefðbundnu ferðirnar en þar er Gullni hringurinn vinsælastur ásamt ferð í Bláa lónið.

Gunnar segir verð ferðanna hafa lækkað mikið í kjölfar bankahrunsins í haust og því sé hagstæðara fyrir farþega skemmtiferðaskipanna að ferðast um landið en áður. „Hins vegar er ljóst að það er kreppa víðar en á Íslandi og fólk er viðkvæmara en áður fyrir því hvað hlutirnir kosta,“ segir Gunnar en bætir við að of snemmt sé að segja til um hvaða áhrif þetta hafi á aðsókn í ferðir Atlantiks.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ýmsar verur klífa nú Hallgrímskirkju í magnaðri ljósasýningu.

Böðuð ljósi og litum

20:52 Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes. Meira »
Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.
18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsaleigusamningar
Löggiltur skjalapappír fyrir samninga. 100kr. stk. Dyraskilti 3.600 kr. BOÐI ...
BRIDGESTONE BLIZZAK 195/65 R15 Á FELGUM
Var undir Toyota Avensis, 5x100 stálfelgur og nýlegir Toyota hjólkoppar. Hljóðlá...
Dísel bíll
Scoda Octavia Station 2006, dísel. Sjálfskiptur, ný heilsársdekk, litað gler. Ke...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
 
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Uppboð Eftirtaldar bifreiðir ver...
Stúkan fjölnir
Félagsstarf
l FJÖLNIR 6012020719 I...
Sölumaður
Sölu/markaðsstörf
Sölu- og viðgerðar- menn óskast til...