Tíu sæmdir fálkaorðunni

Forseti Íslands með orðuhöfum á Bessastöðum.
Forseti Íslands með orðuhöfum á Bessastöðum. mbl.is/Gunnar Vigfússon

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum í dag, þjóðhátíðardaginn.

Þau fengu fálkaorðuna:

Árný J. Guðjohnsen ritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og mannúðarmálum.
Björn Jónsson fyrrverandi skólastjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til uppeldismála, menningar og skógræktar.
Böðvar Guðmundsson rithöfundur, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta.
Guðrún Jónsdóttir bóndi, Arnbjargarlæk, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og velferðarmála.
Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til félags- og íþróttamála.
Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Fjarðabyggð, riddarakross fyrir framlag til opinberrar stjórnsýslu.
Hólmfríður Árnadóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi.
Ólafur Eggertsson bóndi, Þorvaldseyri, riddarakross fyrir nýjungar í landbúnaði.
Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sviss, riddarakross fyrir framlag til alþjóðlegs hjálparstarfs.
Páll Bergþórsson fyrrverandi veðurstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á veðurfari og sögu þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert