Afreksstúdentar styrktir

stækka

mbk.is/kristinn

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands hefur veitt ellefu styrki til afburðanemenda sem hefja nám í Háskóla Íslands næsta haust. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.

Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45.000 krónur. Styrkirnir voru afhentir á Háskólatorgi við hátíðlega athöfn.

Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður í fyrra og er markmið hans að styrkja nýnema til náms við Háskóla Íslands. Styrkirnir eru að þessu sinni veittir með stuðningi Símans og Happdrættis Háskóla Íslands.

Alls bárust 119 umsóknir um ellefu styrki úr sjóðnum. Við val á styrkhöfum var litið til afburðaárangurs á stúdentsprófi en einnig voru lögð til grundvallar sjónarmið um virkni stúdents í félagsstörfum í framhaldsskóla auk árangurs á öðrum sviðum, svo sem í listum eða íþróttum.

Þeir ellefu afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi umsækjenda eru: Arna Pálsdóttir sem hefur grunnnám í efnaverkfræði, Bjarni Þór Sigurbjörnsson sem hefur nám í lögfræði, Edda Pálsdóttir sem hefur nám í umhverfis- og byggingarverkfræði, Hafsteinn Gunnar Hauksson sem hefur BS-nám í hagfræði, Helga Theodóra Jónasdóttir sem hefur nám í lögfræði, Hugrún Jónsdóttir sem hefur BA-nám í hagfræði (samhliða 60 eininga námi í sagnfræði), Urður María Sigurðardóttir sem hefur BS-nám í sálfræði til 180 eininga, Sigurrós Jónsdóttir sem hefur nám í læknisfræði, Stefanía Hákonardóttir sem hefur nám í rafmagnsverkfræði, Tómas Örn Rosdahl sem hefur BS-nám í eðlisfræði og Ögmundur Eiríksson sem hefur nám í stærðfræði með eðlisfræðikjörsvið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.

Bæta þarf eftirlit með samningum

17:06 Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninganna sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Meira »
Hæstiréttur

Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

16:41 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda. Meira »

Margrét er sátt við flutning

Margrét Frímannsdóttir er sátt við flutning fangelsisstarfseminnar á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi.
16:32 „Sogn býður upp á marga góða kosti, við erum sátt við þennan stað,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um þá hugmynd að flytja fangelsisstarfsemina á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi. Meira »

„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“

Tómur skartsgripastandur í verslun Lauru Ashley.
16:16 Brotist var inn í verslun Lauru Ashley í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum og öðrum vörum. Tvö önnur innbrot voru framin í verslunum í nágrenninu í nótt. Meira »

Nauðgunarmál enn í rannsókn

16:07 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar nauðgunarkærur á hendur Agli Einarssyni. Í síðustu viku sendi ríkissaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Sú rannsókn gengur ágætlega og á lögreglan von á að henni muni ljúka í lok næstu viku. Meira »

„Kemur ekki á óvart“

Sigurjón Þórðarson
16:24 „Þessi dómur kemur mér ekki á óvart,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Reykjavíkurborg beri að greiða Frjálslynda flokknum tæpar sjö milljónir króna sem greiddar voru til Borgarmálafélags F-listans sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafði umráð yfir. Meira »

Miðar hægt en örugglega niður

Tveir Bretar voru sóttir á Vatnajökul í morgun. Þeir eru nú á leið niður af ...
16:15 Björgunarleiðangrinum á Vatnajökli miðar hægt en örugglega til byggða með Bretana tvo sem óskuðu eftir aðstoð í morgun. Slæm færð er á svæðinu og veður versnandi. Meira »

Frjálslyndi flokkurinn vann

Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi.
15:46 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Frjálslynda flokknum í vil í dómsmáli sem reis vegna ágreinings um hver ætti að fá framlag Reykjavíkurborgar vegna framboðs til borgarstjórnar. Borginni er gert að greiða 6,7 milljónir, auk vaxta, til flokksins. Meira »

Varað við ísingu

15:43 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því hætta sé á að það myndist lúmsk ísing á vegum sunnan- og vestanlands nú síðdegis þegar fer að frysta á ný. Meira »

Jarðskjálfti upp á 3,8 stig

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg. Sá stærsti var 3,8 á richter kvarða.
15:39 Skjálftahrina hefur staðið yfir síðan í morgun á Reykjaneshrygg. Hafa 4-5 skjálftar náð yfir 3 stigum, sá stærsti upp á 3,8 stig. Meira »

Ríkisstjórnin móti sameiginlega ESB-stefnu

Þinghús ESB í Strasbourg.
15:42 Fram kemur í uppkasti að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins frá síðastliðnum mánudegi að fulltrúar í nefndinni hefðu áhyggjur af því að ríkisstjórnarflokkarnir hér á landi, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Samfylkingin, séu ekki samstíga í afstöðu sinni til inngöngu í sambandið. Meira »

Heitavatnslaust í Fossvogi á morgun

Starfsmenn Orkuveitunnar
15:25 Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 sama dag. Meira »

„Verða á endanum að standa fyrir eitthvað“

15:09 „Það er ljóst að skoðanakannanir benda til þess að það séu margir óákveðnir kjósendur, við erum að tala um 30-40% kjósenda, og það er lítið traust til Alþingis þannig að það er alveg ljóst að ný framboð gætu átt talsverða möguleika,“ segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Meira »

1.300 tonn í fjórum köstum

Víkingur AK-100
14:58 Víkingur AK er nú á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1.300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum frá því í gærmorgun og fram til kvölds. Meira »

Öll félögin hafa hækkað

Bensíndropinn verður sífellt dýrari.
14:37 Öll olíufélögin hafa nú hækkað verð á eldsneyti um 3-4 kr. Bensínlítrinn kostar nú í kringum 249 kr. og lítrinn af dísilolíu um 256 kr. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að ekki sé hægt að skýra þessu hækkun með eðlilegum hætti. Meira »

Dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Kannabis
15:03 Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu fíkniefna. Meira »

Mega ekki fá nýja púða strax

Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um ...
14:40 Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir.Ekki er talið óhætt að setja strax nýja púða þar sem þeir leku gætu hafa ert vefi í líkama kvennanna. Þetta segir sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu. Meira »

Ræða við grunnskólakennara

Kjarasamningar kennara renna út í lok mánaðarins.
14:35 Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt að fela samninganefnd sambandsins að gera nýja viðræðuáætlun við Kennarasamband Íslands vegna Félags grunnskólakennara, sem miði að því að viðræðum ljúki með undirskrift nýs kjarasamnings aðila eigi síðar en 1. desember 2012. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framle...
Uppsetning Innréttinga.
Tek að mér uppsetningu innréttinga og endurbætur á húsnæði. Láttu fagmann vinna ...
Ljósar náttúruflísar 61*61
Til sölu mjög fallegar ljósar náttúruflísar í stærð 61*61 cm. 220 fermetrar. Ver...
HUMARHLAÐBORÐ - Árshátíð - Vorferð -
Humar, humar, ... lamb. Humarhlaðborð - aðeins 35 mín frá Rvk. - tilvalið fyri...
 
Búðarhálslína - landsnet

Útboð BH1-01 Búðarhálslína 1 Vegsló...
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012020819 III ...
Tæknimaður
Iðnaðarmenn
Mainstream Norway A/S er fiskeldisfyrirt...
Stúkan hlín
Félagsstarf
jHlín 6012020719 VI ...