Dæmdur á ný fyrir meiðyrði
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt blaðamann DV til að greiða manni 1 milljón króna í bætur fyrir ummæli, sem viðhöfð voru um hann í blaðagrein, og dómurinn telur brjóta gegn friðhelgi einkalífs manns. Sami blaðamaður var dæmdur í síðustu viku til að greiða fyrrverandi eiginkonu mannsins 700 þúsund krónur í bætur.
Dómurinn í dag er vegna sömu greina, og dómurinn sem féll í síðustu viku, umfjöllunar um forstöðumann meðferðarheimilis á Norðurlandi, sem birtist í helgarblaði DV í ágúst 2007 og fleiri tölublöðum í kjölfarið. Þar voru m.a. höfð ummæli um forstöðumanninn og eiginkonu hans eftir nafngreindum bróður forstöðumannsins.
Bæði forstöðumaðurinn og konan stefndu bróðurnum og blaðamanninum, Trausta Hafsteinssyni, fyrir meiðyrði. Í niðurstöðu héraðsdóms í báðum málunum segir að blaðamaðurinn hafi leitað til viðmælandans og vitnað til frásagna hans. Ekki hafi hins vegar verið um að ræða viðtal við hann og hann fékk ekki greinina til yfirlesturs eða veitti formlegt samþykki fyrir birtingu hennar. Því teljist viðmælandinn ekki vera höfundur efnisins heldur blaðamaðurinn.
Forstöðumaðurinn krafðist þess að á fjórða tug tilgreindra ummæla í greinunum yrðu dæmd dauð og ómerk. Héraðsdómur segir í niðurstöðu sinni, að fjölmiðlar hafi rúmt svigrúm til umræðu um þjóðfélagsmálefni sem eigi erindi til almennings eins og talið verði eiga við um það efni sem um ræði í máli þessu. Þá beri að líta til þess að blaðið birti athugasemdir og leiðréttingar að því marki sem eftir því var óskað og baðst jafnframt velvirðingar á því sem missagt kynni að hafa verið vegna þess að heimildir hefðu ekki reynst nógu traustar.
Því taldi dómurinn ekki efni til að ómerkja önnur ummæli en þau sem töldust ærumeiðandi samkvæmt hegningarlagaákvæðum. Voru tilgreind sex ummæli, sem snéru að persónulegum málefnum forstöðumannsins og dómurinn taldi óhæfileg og án samhengis við yfirlýst umfjöllunarefni, þ.e. meðferðarheimilið. Með þessu hafi Trausti brotið gegn friðhelgi einkalífs mannsins.
Hann var dæmdur til að greiða forstöðumanninum 700 þúsund krónur í miskabætur og 300 þúsund krónur til að kosta birtingu dómsins.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Blaðamaður dæmdur fyrir meiðyrði
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Ummæli ómerkt
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Dæmdur til að greiða 3,5 milljónir í bætur
- Fimmtudagur, 24. júlí 2008, Innlent Réðist á konu og börn hennar
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Blaðamaður greiðir bætur
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































