Forsætisráðherra magnaði upp draug
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefði magnað upp þann draug, sem stjórnvöld höfðu áður sagt að hefði fylgt samningaviðræðunum um Icesave-reikningana.
Vísaði Sigmundur Davíð í bréf, sem Jóhanna sendi Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í apríl þar sem segði að íslensk stjórnvöld hefðu skipað samninganefnd sem hefði það hlutverk að semja um Icesave á grundvelli minnisblaðs, sem gert var í október sl. Um þetta minnisblað sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, m.a. að það hefði fylgt samningaviðræðunum eins og afturganga.
Sigmundur Davíð gagnrýndi stjórnvöld harðlega fyrir samningana og sagði að ekkert sem sagt hefði verið um þá hefði staðist. Samt ætlaðist ríkisstjórnin til að fólk trúi því, að þetta verði allt í lagi og fari allt á versta veg sé flóttaleið í samningnum.
„Það er ekki boðlegt að alþingismenn staðfesti þennan samning," sagði Sigmundur Davíð.
Steingrímur J. Sigfússon sagðist ekki kannast við, að forsætisráðherra hefði tilkynnt breskum stjórnvöldum að til stæði að semja á grundvelli minnisblaðsins.
Hann sagði ástæðulaust að ætla, að um væri að ræða óvenjulegan gjörning sem stefndi fullveldi Íslands í hættu. Sagðist Steingrímur telja, að það þjóni takmörkuðum tilgangi að ala á tortryggni gagnvart almenningi, sem sé illa beygður fyrir og treysti fáu.
Bloggað um fréttina
-
Jóhann Pétur Pétursson Og hvað hefur ríkisstjórnin gert til þess að öðlast traust ...
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent Hvert klúðrið hefur rekið annað
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Farið verði fram á skýringar AGS
- Föstudagur, 28. ágúst 2009, Innlent 10 vikna umfjöllun að ljúka
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Icesave til umræðu á þinginu í dag
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Gögnum ekki haldið frá þinginu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































