Yfirlýsing sjálfstæðismanna í Kópavogi
Gunnar I Birgisson bæjarstjóri Kópavogs á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. mbl.is/Golli
„Í Morgunblaðinu þann 17. júní birtist fréttaskýring af fulltrúaráðsfundi sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi sem haldinn var þann 15. júní s.l. Þar komu fram nokkrar rangfærslur sem rétt er að leiðrétta. Því miður er það svo að fréttamaður virðist ekki hafa leitað nægjanlega traustra heimilda enda hefði þá fréttaskýring hans verið á aðra leið. Honum má þó kanski virða til vorkunnar að hugsanlega hafa flestir fulltrúaráðsfulltrúar sem hann kann að hafa leitað til virt þann trúnað sem þeir gangast undir með setu í fulltrúaráðinu og ekki viljað tjá sig. Hér munum við því aðeins leiðrétta rangfærslur sem komið hafa fram en ekki tjá okkur að öðru leyti um umfjöllunarefni fundarins.
Í samantekt í byrjun greinar er því haldið fram að um helmingur fundarmanna hafi viljað að Gunnar viki úr stóli bæjarstjóra. Þetta er algerlega röng og órökstudd fullyrðing og útilokað að halda slíku fram þar sem aðeins ein tillaga var borin undir atkvæði á fundinum og samþykkt með atkvæðum nánast allra fundarmanna. Hvað bjó í huga fundarmanna er getgátur einar eða óskhyggja.
Haft er eftir ónafngreindum fundarmanni úr Sjálfstæðiskvennafélaginu Eddu að niðurstaða fundarins hafi ekki komið frá Gunnari I. Birgissyni, heldur Tryggva M. Þórðarsyni. Það er vissulega rétt að formlega tillagan sem samþykkt var kom frá Tryggva en Gunnar hafði lagt til við fundinn í lokaræðu sinni þessa sömu leið, þ.e. að kjörnir fulltrúar okkar skyldu ná samkomulagi við samstarfsflokkinn um áframhaldandi samstarf. Það er því alrangt að halda því fram að niðurstaða fundarins hafi ekki komið fram fyrir tilstilli Gunnars. Gunnar lagði þetta til við fundinn áður en tillaga Tryggva kom fram og bauðst áfram til að stíga til hliðar og taka hagsmuni flokksins fram yfir sína.
Einnig er ranghermt að harðorð tillaga hefði veitt Gunnari heimild til að slíta samstarfinu. Hún veitti Gunnari enga heimild. Hún gekk út á að hafna því að Gunnar stigi til hliðar og það væri þá undir samstarfsflokknum komið hvort þeir slitu samstarfinu eða ekki. Í því sambandi má líka benda á að Gunnar hafði alveg í hendi sér hvort hann viki eða ekki. Kjörnir fulltrúar eru ekki bundnir af samþykktum fulltrúaráðsins, heldur sækja þeir umboð sitt til kjósenda eins og tekið var fram á fundinum.
Að öðru leyti viljum við taka fram að þessi fundur fór vel fram af hálfu fundarmanna, ræðumenn voru málefnalegir og fluttu mál sitt æsingalaust. Það ber að þakka. Fundir fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna er sá vettvangur þar sem við fjöllum um okkar mikilvægustu mál og brýnt er að þar heyrist öll sjónarmið. Þannig vinnum við hagsmunum Kópavogsbúa mest gagn.“




































