Skógræktarfélagið fær bætur
Hluti trjánna úr Heiðmörk á svæði Klæðingar. Kristinn ingvarsson
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Kópavogsbæ til að greiða Skógræktarfélagi Reykjavíkur 19,4 milljónir króna í bætur að viðbættum vöxtum vegna trjáa, sem flutt voru til vegna framkvæmda við stofnlögn Vatnsveitu Kópavogs í Heiðmörk.
Miklar deilur urðu vegna þessa máls í febrúar árið 2007 og gengu ásakanir á milli.
Skógræktarfélagið fór fram á 21 milljón króna í bætur vegna skemmda á trjáræktinni. Tveir dómkvaddir matsmenn komust að því að 559 tré á um það bil 3.600m² landi í og við svonefndan Þjóðhátíðarlund í Heiðmörk hefðu farið forgörðum við framkvæmdirnar. Bótakrafan var byggð á mati á smásöluverði trjágróðursins á almennum markaði.
Skógræktarfélagið byggði kröfu sína á að trén hafi verið í eigu og umsjá félagsins – en landið er í eigu Reykjavíkurborgar. Í niðurstöðu dómsins segir, að félagið njóti réttar til lands og trjágróðurs í Heiðmörk sem grundvallaður sé á tveimur samningum sem félagið hefur gert við Reykjavíkurborg um umsjón, rekstur og framkvæmdir þar og reglum sem fyrri samningnum fylgja.
Því hefði átt að taka sérstakt tillit til réttinda Skógræktarfélagsins áður en ráðist var í framkvæmdir á umráðasvæði þess í Heiðmörk og þá með sérstöku samkomulagi við félagið eða eftir öðrum lögbundnum leiðum. Það var ekki gert og framkvæmdir að auki hafnar án þess að leyfi til þeirra samkvæmt skipulags- og byggingarlaga lægi fyrir. Því sé haldlaus sú málsvörn Kópavogsbæjar, að vísa til samkomulags sem gert var við Reykjavíkurborg um framkvæmdir á svæðinu.
Þá stoði Kópavogsbæ ekki heldur að vísa til þess að samráð hafi verið haft við framkvæmdastjóra Skógræktarfélagsins vorið 2003, en það laut eingöngu að vali á heppilegustu lagnaleið og tók þannig í engu til þeirra fjárhagslegu hagsmuna, sem felist í réttindum félagsins á svæðinu.
„Með því að ráðast allt að einu í framkvæmdir og raska með þeim trjágróðri sem (Skógræktarfélag Reykjavíkur) hafði í framangreindum skilningi eignarráð yfir og án samkomulags við hann braut Kópavogsbær gegn lögvörðum hagsmunum félagsins og bakaði sér skaðabótaskyldu gagnvart því vegna þess tjóns sem af framkvæmdunum hlaust," segir síðan í dómnum.
Auk bótanna var Kópavogur dæmdur til að greiða Skógræktarfélagi Reykjavíkur 2,1 milljón í málskostnað. Skógræktarfélagið höfðaði einnig bótamál gegn verktakafyrirtækinu Klæðningu, sem sá um verkið í Heiðmörk. Félagið var hins vegar sýknað af kröfunni og var skógræktarfélagið dæmt til að greiða Klæðningu 600 þúsund krónur í málskostnað.




































