Ók á hús verkalýðsfélags

Miklar skemmdir eru á húsinu.
Miklar skemmdir eru á húsinu. mbl.is/Alfons Finnsson

Ölvaður ökumaður stórskemmdi húsnæði verkalýðsfélags Snæfellsbæjar í nótt, en húsnæði verkalýðsfélagsins er að Ólafsbraut 19. Þar eru einnig nokkur önnur fyrirtæki.

 Guðbjörg Jónsdóttir starfsmaður verkalýðsfélagsins sagði í samtali við Morgunblaðið, að húsnæðið sé mikið skemmt, og hleypur tjónið á einhverjum milljónum, Guðbjörg bætir við að ökumaður bifreiðarinnar hafi stungið af og hafi lögreglan náð ökumanninum og svipt hann ökuskírteininu á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert