Gunnar fer í leyfi
Gunnar I. Birgisson sendi frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að hann muni fara í tímabundið leyfi sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í Kópavogi meðan á rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra stendur á málefnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs.
Gunnar sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að ekki kæmi til greina að segja af sér sem bæjarfulltrúi. „Nei, ég tel mig ekki hafa framið neinn glæp og við í stjórninni vorum einungis að hugsa um hagsmuni sjóðsins," sagði Gunnar.
Fyrir lá fyrir helgi, að Gunnar myndi hætta sem bæjarstjóri vegna viðskipta Frjálsrar miðlunar, félags dóttur hans, við Kópavogsbæ. Gert var ráð fyrir að það yrði ákveðið á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi á morgun hver tekur við af Gunnari.
Í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld sagði Gestur Valgarðsson, formaður Framsóknarfélags Kópavogs í Kópavogi, að framsóknarmenn stæðu frammi fyrir tveimur kostum. Annar sé að mynda nýjan meirihluta með Samfylkingunni og VG og hinn að halda samstarfi með sjálfstæðismönnum áfram, án Gunnars Birgissonar, sem viki þá strax bæði sem bæjarfulltrúi og sem stjórnarmaður í lífeyrissjóðnum.
Yfirlýsing Gunnars
„Ég undirritaður vík sæti sem bæjarstjóri í Kópavogi og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs á meðan lögreglurannsókn fer fram á málefnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Slík rannsókn ein og sér vekur tortryggni sem gerir mér ókleift að sinna störfum mínum eins og málum er að öðru leyti háttað.
Ég treysti því að rannsókninni verði flýtt sem kostur er enda liggur málið ljóst fyrir í gögnum lífeyrissjóðsins en fjármálaráðuneytið hefur samkvæmt tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað honum umsjónaraðila.
Ég vísa að öðru leyti í yfirlýsingu kjörinna stjórnarmanna lífeyrissjóðsins frá 19. júní sl. og árétta að stjórnin var samstíga í því efni að vernda hagsmuni sjóðfélaga og var reglulega upplýst um allar aðgerðir hans.
Gunnar I. Birgisson"
Bloggað um fréttina
-
Bergur Thorberg Íslendingar óttast hákarla -
Marta Gunnarsdóttir Gunnar flúinn því það hitnaði um of undir honum -
-
Katrín Þá hljóta ljótu.... -
Einar Guðjónsson Hvað gerir Ómar ?? -
Gunnar Gunnarsson Frí frá hælbítum -
Stefán Friðrik Stefánsson Gunnar víkur meðan rannsókn fer fram -
Magnús Helgi Björgvinsson Fer Gunnar í leyfi eða veikindaleyfi? -
Ásdís Sigurðardóttir Gott hjá þér Gunnar.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 24. júní 2009, Innlent Halda samstarfinu áfram
- Föstudagur, 20. nóvember 2009, Innlent Gunnar gefur aftur kost á sér
- Sunnudagur, 21. júní 2009, Innlent Framsókn leggst undir feld
- Miðvikudagur, 7. júlí 2010, Innlent Gunnar til í slaginn
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Innlent Bæjarstjórinn í Kópavogi á útleið vegna átaka
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































