Fréttaskýring: Flóð umsagna og mikill gestagangur

Frá Alþingi. Þingfundir víkja fyrir nefndarstörfum flesta daga í þessari viku. stækka

Frá Alþingi. Þingfundir víkja fyrir nefndarstörfum flesta daga í þessari viku. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is

Stíft er fundað í utanríkismálanefnd þessa dagana um ályktunartillögurnar tvær um aðildarumsókn að ESB. Tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að ESB og tillögu framsóknar- og sjálfstæðismanna um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að ESB. Fundað verður nánast dag hvern í þessari viku en að sögn Árna Þórs Sigurðssonar, formanns nefndarinnar, er ljóst að nefndin mun þó ekki ljúka umfjöllun um tillögurnar fyrr en eftir mánaðamótin.

Nokkrir tugir gesta hafa komið fyrir nefndina, rætt hefur verið við fulltrúa hagsmunasamtaka, stofnana og ráðuneyta. Í seinustu viku rann út frestur til að skila inn umsögnum við tillögurnar. Liggja fyrir samtals 108 erindi, sem nefndarmenn fara yfir en í mörgum tilvikum er um samhljóða umsagnir að ræða við tillögurnar tvær. Má því ætla að raunverulegur fjöldi umsagna sem borist hafa sé um 60.

Að sögn Árna Þórs hefur nefndin tekið á móti gestum alla síðustu viku. „Við erum því ekki byrjuð að vinna í tillögunum sjálfum heldur höfum aðallega verið að leita eftir viðhorfum og ábendingum.“ Árni Þór segir nefndarmenn reyna að átta sig á hvort ná megi samstöðu um málsmeðferðina burtséð frá afstöðu manna til aðildar að ESB. Spurður hvort reynt væri að tvinna tillögurnar saman í eina, eins og lagt er til að gert verði í mörgum umsögnum, sagði hann að unnið væri í því.

Margar umsagnir hafa þegar verið birtar á vef þingsins og kemur fátt þar á óvart. Þar endurspeglast ágreiningurinn í þjóðfélaginu um hvort sækja eigi um aðild. ASÍ og flest aðildarsamtök þess hvetja eindregið til aðildarumsóknar. Í umsögn Starfsgreinasambandsins segir að á vettvangi þess hafi komið fram mikilvægi þess að aðildarviðræður einar muni leiða fram raunverulega kosti og galla beinnar aðildar. Því sé mikilvægt að hefja aðildarferilinn sem fyrst. MATVÍS tekur í sama streng og hvetur til aðildarumsóknar en gagnrýnir að tillaga stjórnarandstöðu virðist sett fram til þess eins að tefja aðildarumsókn ,,og halda okkur enn lengur í fjötrum gagnslítils gjaldmiðils [...]“. BSRB slær nokkuð annan tón en félagarnir í ASÍ. Bandalagið hefur enn ekki tekið afstöðu til aðildar að ESB en lýsir sig sammála mati á grundvallarhagsmunum landsins sem fram kemur í tillögu ríkisstjórnarinnar.

Komi sér saman um eina tillögu

Samtök atvinnulífsins eru klofin í afstöðu sinni til ESB-aðildar. Í umsögn SA segir að skiptar skoðanir séu innan samtakanna um aðild Íslands að ESB og að SA muni gæta hagsmuna allra aðildarfélaga á grundvelli þess. LÍÚ er andvígt aðildarumsókn en Samtök iðnaðarins eru á öndverðum meiði og vilja aðild. Samtök ferðaþjónustunnar skora á þingmenn að koma sér saman um eina tillögu í stað tveggja. Landssamband kúabænda leggur til að þingið hafni báðum tillögunum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nánast nýr Toyota Auris til sölu.
Til sölu Toyota Auris Terra, ekinn aðeins 2 þús.km. og því nánast sem nýr. Nýskr...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
Hjólbarðar til sölu
Er með fjögur Goodyear dekk gróft munstur, stærð 33x12.5R17LT ekin ca 12-15þús k...
Palomino Colt fellihýsi til sölu
Mjög vel með farið 9 feta Palomino Colt árg 2002 ásamt fortjaldi+dúk. Sólarsella...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...