Heilluð af náttúrunni
Landinn var á faraldsfæti um helgina og gönguhópar víða á ferð. Í gærkvöldi, á lengsta degi ársins, var farin sólstöðuganga um Öskjuhlíð í Reykjavík þar sem Þór Jakobsson veðurfræðingur var leiðsögumaður.
„Við köllum þetta meðmælagöngu með lífinu og menningunni. Mótmæli geta vissulega verið ágæt en það léttir lundina að vera úti í náttúrunni, sjá eitthvað fróðlegt og hitta mann og annan,“ segir Þór sem nú fór í 25. sinn fyrir sólstöðugöngu. Gönguferðir undir sömu formerkjum voru farnar víðar á landinu í gær, svo sem austur í Skálholti og norður í Þingeyjarsýslum.
Rúmlega 250 manns gengu með Ferðafélagi Íslands á Snæfellsjökul á föstudagskvöld. Lagt var á brattann við rætur jökulsins síðla kvölds og efsta hjalla náð um klukkan eitt um nóttina. Í áfangastað kom hópurinn til baka á óttunni, síðari hluta nætur.
„Þetta var stórkostleg upplifun. Við urðum vitni að því hvernig kyrrð færðist yfir allt um miðnæturbil og síðan hvernig landið vaknaði sem úr dvala þegar sólin kom aftur upp í stórkostlegri sinfóníu litbrigða jarðarinnar,“ segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ, sem var meðal fararstjóra.
Páll segir að líkast til hafi aldrei jafnstór hópur gengið í einu á eitt af hæstu fjöllum landsins svo sem Snæfellsjökul, sem er 1.446 metrar á hæð. Mikla þátttöku segir hann endurspegla áhuga landans á útiveru og fjallaferðum. Þátttaka í ferðum FÍ hafi sjaldan verið jafnmikil og einmitt nú í sumar.
Um 140 manns tóku þátt í árlegri Jónsmessugöngu Útivistar yfir Fimmvörðuháls aðfaranótt laugardags. Fararstjórar og björgunarsveitarmenn fylgdu hópnum, sem í það heila var um 200 manns. Veður og aðrar aðstæður í ferðinni voru allar hinar ákjósanlegustu. „Fyrstu göngugarparnir komu hingað um klukkan fimm um morguninn og þá tókum við á móti fólki með lýsissnafsi eða Gammel Dansk. Fleiri völdu lýsið, því fæstir þurftu áfengi. Bros var á sérhverju andliti og ekki ofsagt að fólk hafi verið ölvað af náttúruvímu eftir ferðina,“ segir Ingi Bragason, skálavörður Útivistar í Básum.
sbs@mbl.is
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 21. mars 2010, Innlent Ferðafélagið fylgist með
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Innlent Guðrún formaður stjórnlaganefndar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































