Eiður: Dómstóllinn ekki til
Eiður Guðnason, fyrrverandi ráðherra Alþýðuflokksins og sendiherra, segir engin lagarök að baki grein Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hæstaréttardómara, um Icesave málið í Morgunblaðinu í gær. Hún sé pólitískt innlegg í málið og sá dómstóll sem ætti að fjalla um deiluna sé ekki til.
Eiður skrifaði svohljóðandi pistil á heimasíðu sína í gærkvöldi:
„Virðulegur hæstaréttardómari segir í þessari Morgunblaðsgrein, að það sé skylda ráðamanna að láta dómstóla fjalla um Iceasave-málið. Nú geta menn haft ýmsar skoðanir á því hvort hæstaréttardómari eigi að blanda sér í deilumál af þessu tagi með þeim hætti sem Jón Steinar Gunnlaugsson gerir. Víst tel ég að það þætti ekki við hæfi í grannlöndum okkar.
Það er hinsvegar athyglisvert að hæstaréttardómarinn forðast eins og heitan eldinn að nefna hvaða dómstóll ætti að fjalla um deiluna. Sem er auðskilið. Sá dómstóll er nefnilega ekki til. Ætti það að vera Efta dómstóllinn? Bretar eiga enga aðkomu að honum. Ætti það að vera dómstóll ESB? Við eigum enga aðkomu að honum.
Eru allir búnir búnir að gleyma því þegar Bretar vildu leggja landhelgisdeiluna fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag, en Íslendingar sögðu nei. Við viðurkenndum ekki að sá dómstóll hefði lögsögu í málinu.
Samþykki beggja þarf til að fara dómstólaleiðina. Þar þarf tvo til. Við bætist að við vorum fyrir löngu búin að skuldbinda okkur til að fara samningaleiðina í þessu máli. Fleiri og veigameiri rök liggja til þess að dómstólaleiðin svokallaða hefur aldrei verið fær í þessum máli.
Allt þetta veit Jón Steinar Gunnlaugsson. Það eru engin lagarök að baki grein hans í Morgunblaðinu. Hún er pólitískt innlegg í málið. Og líklegt gott innlegg að mati þeirra sjálfstæðismanna, sem nú hafa ákveðið að hlaupast frá ábyrgð sinni á málinu.“
Bloggað um fréttina
-
Frjálshyggjufélagið Misskilningur hjá Eiði -
Axel Jóhann Axelsson Dómstóllinn er víst til -
Tóti Sigfriðs Og við eigum náttúrulega að taka Eið trúanlegann -
Guðbjörn Jónsson Eiður eins og nátttröll í upplýstu nútímasamfélagi -
Jóhann Hallgrímsson Hvaða máli skiptir það? -
Ómar Geirsson Hvað bull er þetta í manninum.
Innlent »
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 15. september 2008, Innlent Skaðabótamáli vísað frá
- Mánudagur, 11. janúar 2010, Innlent Farsælast að fara fyrir dóm
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Látum ekki undan þrýstingi
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Trúði ekki eigin augum
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Hefur fordæmisgildi í Evrópu
-
Fólk víða að minnast Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað




































