Fagna því að leggja eigi Varnarmálastofnun niður

„Ung vinstri græn fagna því að til standi að leggja niður Varnarmálastofnun í núverandi mynd. Hreyfingin harmar þó að tilgangslausar og kostnaðarsamar heræfingar hafi ekki verið lagðar af í leiðinni,“ segir í ályktun sem UVG hefur sent frá sér. Þar segir ennfremur: „Þá vilja Ung vinstri græn benda á að hægt væri að spara tugi milljóna með því að segja Ísland úr NATO. Ung vinstri græn leggja til að heræfingar, loftrýmiseftirlit og önnur hernaðarleg starfsemi verði lögð niður og að peningarnir sem sparast verði nýttir í velferðarkerfinu. Svo dæmi sé tekið væri hægt að veita þeim inní Lánasjóð íslenskra námsmanna sem hefur þurft að fara í gegnum sársaukafullar sparnaðaraðgerðir að undanförnu. 

Ung vinstri græn hvetja stjórnvöld til að forgangsraða rétt á erfiðum tímum. Það er skref í rétta átt að leggja niður Varnarmálastofnun, en betur má ef duga skal. Það eru ekki aðeins hagsmunir ungs fólks, heldur allra Íslendinga að íslenska ríkið fjárfesti í menntun, mannviti og öflugu velferðakerfi, en hendi ekki peningum í tilgangslaust hernaðarbrask.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert