Háar sektir sjaldnast greiddar
Um 1.600 eru á biðlista eftir afplánun vararefsingar. Ríkisendurskoðun telur að fjölga þurfi fangaklefum verulega. mbl.is/Ómar Óskarsson
Lítill hluti hæstu sekta sem dómstólar ákveða er greiddur. Yfirleitt eru hæstu sektir gerðar upp með svonefndri samfélagsþjónustu. Þetta á við um 81% sekta sem voru 8 milljónir kr. eða hærri á tímabilinu 2000‐2006. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar.
Ríkisendurskoðun telur að með því að heimila fullnustu hárra sekta með samfélagsþjónustu í stað afplánun vararefsingar í fangelsi sé verið að milda viðurlög samkvæmt dómum. Það eigi sérstaklega við um sektadóma fyrir skattalagabrot. Einnig að fjölga þurfi verulega fangelsisrýmum til að unnt sé að fullnusta vararefsingar fésekta með fangelsi.
Í skýrslunni segir að í árslok 2008 hafi 1.600 manns verið á biðlista um afplánun vararefsingar. Ekki eru líkur á fækkun á þeim lista í bráð.
Stofnunin telur að kanna þurfi hvort verið sé að senda rétt skilaboð út í samfélagið með því að fullnusta svonefnd „hvítflibbabrot“ með samfélagsþjónustu. Meginmarkmið refsinga sé að skapa almenn varnaðaráhrif og fæla frá lögbrotum.
Hindra þarf undanskot verðmæta
Ríkisendurskoðun telur að innheimta lægri sekta og sakarkostnaðar sé í góðu horfi hér á landi. Eftir að þær ná 500 þúsund kr. eða meira heyri hins vegar til undantekninga að þær séu greiddar. Meginreglan er sú að þær séu fullnustaðar með samfélagsþjónustu, og sjaldnar vararefsingu, þ.e. fangelsisvist
Þá telur stofnunin að veita þurfi innheimtuaðilum öflugri lagaleg úrræði til að hindra að eignum eða fjármunum sé skotið undan þegar sakfelling liggur fyrir og háar sektir blasa við. Einnig þurfi að athuga hvort heimila eigi kyrrsetningu eigna á rannsóknarstigi þegar hætta er á undanskotum og sekt þykir nokkuð óyggjandi.
Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er til staðar heimild til að draga sektarfjárhæðir frá launum. Stofnunin telur að kanna þurfi lögfestingu slíkrar heimildar hér á landi.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 10. maí 2010, Innlent Geta greitt sekt en borga ekki
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Innlent Bætur fyrir harkalega handtöku
- Laugardagur, 22. nóvember 2008, Innlent Bónusfánamaður handtekinn
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Dómar hafa fyrnst vegna húsnæðisvanda í fangelsum
- Mánudagur, 24. nóvember 2008, Innlent Sýslumanni bar að auglýsa deildarstjórastöðu
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































