Josefsson setti engin skilyrði
Sænski sérfræðingurinn Mats Josefsson setti engin skilyrði fyrir áframhaldandi starfi fyrir íslensk stjórnvöld en kom þeirri skoðun sinni skýrt á framfæri við stjórnvöld, að það fyrirkomulag sem upphaflega var sett upp varðandi enduruppbyggingarstarfið í bankamálum hafi ekki verið eins skilvirkt og stefnt var að.
Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi.
Eygló spurði hvaða skilyrði Josefsson hefði sett fyrir áframhaldandi starfi í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins þegar hann hótaði að hætta sem formaður nefndarinnar vegna megnrar óánægju með hægagang við endurskipulagningu bankanna.
Í svarinu segir, að frá lokum ársins 2008 hafi verið starfandi svonefnd samræmingarnefnd í bankamálum sem Mats Josefsson stýrir og sú nefnd hefur haldið vikulega fundi. Í þessari nefnd hafa setið auk Mats fulltrúar forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, utanríkisráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands.
Í maí hafi verið ákveðið í fullu samráði við Mats Josefsson að breyta fyrirkomulagi þessara mála á þann hátt, að í stað samræmingarnefndarinnar yrði settur á laggirnar tímabundinn stýrihópur um endurreisn bankakerfisins. Segir í svari Jóhönnu, að megintilgangur þessarar breytingar sé að styrkja framkvæmd endurreisnarstarfsins enn frekar nú þegar nær dragi þeim tímapunkti, að ríkið leggi nýju bönkunum til nýtt eigið fé þegar samningum við kröfuhafa gömlu bankanna lýkur.
Stýrihópurinn hefur fundað að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum í viku. Í stýrihópnum sitja, auk Josefssonar, seðlabankastjóri, sem stýrir starfi nefndarinnar, fulltrúi forsætisráðuneytis og fjármálaráðuneytis auk aðstoðarmanna forsætis-, fjármála- og viðskiptaráðherra.
Segir Jóhanna, að með þessu nýja fyrirkomulagi í þessum málum sé brugðist við ábendingum Mats Josefssonar um skort á skilvirkni.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Innlent Jóhanna ósammála Josefsson
- Mánudagur, 1. desember 2008, Innlent Forsætisráðuneyti ræður sænskan sérfræðing
- Þriðjudagur, 26. maí 2009, Innlent Tafir á uppskiptingu milli nýju og gömlu valda titringi
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Vill koma bönkum út fyrir áhrifasvið stjórnmálamanna
- Þriðjudagur, 26. maí 2009, Innlent Umskiptingar á þingi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































