Alvarleg staða í fangelsum á Íslandi

Fangelsin á Íslandi eru nú svo yfirfull, að stórar líkur eru á að það bitni á starfsfólki. Ástandið veldur áhyggjum hjá norrænum fangavarðafélögum.

„Í augnablikinu eru íslensk fangelsi meira en fullnýtt. Margir einstaklingsklefar eru tvímannaðir. Þetta hefur í för með sér óásættanlegt vinnuálag á starfsfólk, aukið stress og aukna hættu á veikindum,“ segir Kim Østerbye formaður Norræna Fangavarðasambandsins.

Østerbye segir aðbúnað í fangelsum á Íslandi gera stöðuna enn alvarlegri, núverandi byggingar séu úreltar, elstu fangelsin séu allt frá 1874.

„Þrátt fyrir þetta hefur ríkisstjórnin ákveðið að fresta byggingu tveggja nýrra fangelsa í Reykjavík og á Litla Hrauni vegna slæmrar fjárhagslegrar stöðu Íslands. Við höfum skilning á því að Ísland er í miðri fjármálakreppu, en maður verður að halda sig við lágmarkskröfur um aðbúnað innan fangelsanna, bæði með tilliti til fanga og starfsfólks. Því ber ríkisstjórninni  að endurskoða ákvörðun sína um uppbyggingu nýrra fangelsa,“ segir Kim Østerbye.

Formaður Fangavarðafélags Íslands, Einar Andrésson upplýsir, að þeir neyðist til að nýta einangrunarklefa til vistunar á almennum föngum.

„Þetta þýðir, að við höfum ekki lengur tök á því að  einangra mjög hættulega fanga. Það gerir daglegt starf hættulegra  fyrir samstarfsmenn mína,“ segir Einar.

Hann hefur áhyggjur af miklum niðurskurði á sviði dómsmála á næstu árum.

„Til stendur að skera niður um 10 % á næsta ári. Ég á afar erfitt með að sjá hvernig það gengur upp hjá okkur, þegar bæði er ofnýting á því plássi sem fyrir er og langur biðlisti eftir afplánun. Einnig hefur Fangavarðaskólanum verður lokað vegna sparnaðar, þannig að ekki er hægt að mennta fleiri fangaverði í augnablikinu. Stjórnmálamenn verða að horfast í augu við ástandið,“ segir Einar Andrésson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert