Opinberir starfsmenn með í sáttmálanum
Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB taka þátt í stöðugleikasáttmála ríkisstjórnar, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Byrjað var að undirrita sáttmálann í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 13:30.
„Við teljum betra að taka þátt í sáttmálanum en standa utan samkomulagsins,“ sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands skömmu áður en undirritun sáttmálans hófst.
Í tilkynningu frá samtökum opinberra starfsmanna segir að samtökin hafi tekið þátt í samráði aðila vinnumarkaðarins um kjarasamningagerð og forsendur hennar í ljósi efnahagsþrenginga í landinu. Myndin af umfangi fjárhagsvandans sé fyrst nú að skýrast og sé mun dekkri en lá fyrir við upphaf vinnunnar.
Þá segir að samtökin hafi lagt áherslu á að verja störf og kjaraumhverfi félagsmanna. Stöðugleikasáttmáli sé mikilvægur grundvöllur uppbyggingar og endurreisnar í landinu, jafnframt því að mynda umgjörð fyrir vinnu við gerð kjarasamninga til ársloka 2010.
Samtök opinberra starfsmanna telja nauðsynlegt að mynda enn breiðari grundvöll undir áframhaldandi vinnu með stjórnvöldum við uppbyggingu efnahags, atvinnulífs og kjara í landinu og að í þeirri vinnu verði jafnræði allra aðila tryggt.
Helstu atriði sáttmálans:
- Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði framlengdir til loka nóvember 2010. Gengið verður frá samningum á opinbera markaðnum í þessum anda eins fljótt og auðið er.
- Fyrirliggjandi aðgerðaáætlun í ríkisfjármálum til 2013 lögð fram og sameiginlegur skilningur skapaður á markmiðum tímabilsins 2009 – 2011. Hlutdeild skattahækkana verður ekki meiri en 45% af þeirri upphæð sem þarf til að tryggja jafnvægi í ríkisfjármálunum.
- Mikil áhersla á að tryggja að bætt verði staða lántakenda og skuldsettra heimila. Ríkisstjórn fer yfir og endurskoðar fyrirliggjandi úrræði og gerðar tillögur um viðbætur eftir því sem þörf krefur.
- Framkvæmdir til að stuðla að aukinni atvinnu þar sem lögð er áhersla að greiða götu stórframkvæmda og ráðist í samstarf við lífeyrissjóði um þátttöku í fjármögnun verkefna.
- Tímasettar áætlanir um endurreisn bankanna og eigendastefnu ríkisins, erlendir aðilar muni geta eignast hlut í íslenskum fjármálafyrirtækjum m.a. til að greiða fyrir aðgangi að lánsfé. Endurskipulagning eignarhalds bankanna lokið 1. nóvember 2009.
- Sameiginleg viðmið mótuð um endurreisnar atvinnulífsins og aðkomu opinberra aðila að atvinnustarfsemi og eignarhaldi á fyrirtækjum.
- Tímasettar ráðstafanir í gengismálum þar sem lögð verður fram áætlun fyrir 1. ágúst um afnám hafta . Markmiðið með þessu er að tryggja stöðugleika krónunnar. Leitast verði við að aflétta hömlum á nýrri fjárfestingu fyrir 1. nóvember 2009.
- Vaxtamál þar sem aðilar vinnumarkaðarins lýsa því að vextir verði að lækka og verði komir í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember.
- Sameiginlegt átak í málefnum sem snúa að sveitarfélögunum og varða samstarf á sviði efnahagmála og samræmingu upplýsinga og aðgerða í búskap hins opinbera.
- Framtíðarsýn í málefnum lífeyrissjóða verður til skoðunar og stefnt er að því að fresta öllum ákvörðunum um skerðingu réttinda og fjármögnun frestað meðan fyrrnefnd skoðun fer fram.
- Virkt samstarf um eftirlit á vinnustöðum og innleiðingu vinnustaðaskírteina til að tryggja réttindi starfsfólks, vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og misnotkun atvinnuleysisbóta.
- Framkvæmd yfirlýsingar ríkisstjórnar frá 17. febrúar 2008 um réttindi launafólks er varða Starfsendurhæfingarsjóð, sjúkra og fræðslusjóði og fullorðinsfræðslu.




































