Sáttatónn hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu

Alþjóðahvalveiðiráðið vill færa sig nær vinnubrögðum Sameinuðu þjóðanna og ná þannig fram sátt í ráðinu. Hvalveiðar Íslendinga ekki verið gagnrýndar. Rætt um að leyfa takmarkaðar veiðar. Mögulegt að verslun milli landa með hvalaafurðir verði bönnuð.

Sáttatónn á fundinum

Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu segir sáttatón hafa verið á fundi ráðsins sem lauk á Madeira í gær. „Það kom til dæmis ekki fram nein gagnrýni á hvalveiðar Íslendinga,“ segir Tómas .

Tólf lykilríkjum hefur verið falið að leita að málamiðlun milli hvalveiðisinna og andstæðina og er Ísland í þessum hópi.  Önnur ríki eru: Bandaríkin, Japan, Nýja-Sjáland, Ástralía, Svíþjóð og Þýskaland fyrir hönd ESB, Brasilía, Mexíkó, Kamerún, Antígva og Barbúda og eyríkjasambandið St. Kitts og Nevis. Fyrir hópnum fer nýkjörinn formaður alþjóðahvalveiðiráðsins, Cristian Maquieira frá Chile. 

Færa sig nær vinnubrögðum SÞ

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að fátt hafi komið á óvart á fundi ráðsins. Ekki hafi verið búist við niðurstöðu um framtíð ráðsins. „En menn vilja greinilega færa sig nær vinnubrögðum sem tíðkast innan SÞ þar sem niðurstaða fundar byggir á sameiginlegri niðurstöðu í stað þess að fundir endi á atkvæðagreiðslu þar sem hópur ríkja ber önnur ríki ofurliði,“ segir Árni. Nú eigi að reyna að finna leiðir til þess að sameiginleg niðurstaða aðildaríkja verði möguleg og að mikill meirihluti verði sáttur við niðurstöður. „Þannig ætti að verða auðveldara að stjórna hvalveiðum og nýtingu hvala, hvort sem það eru veiðar, hvalaskoðun eða eitthvað annað.“

Millilandaverslun með hvalaafurðir mögulega bönnuð

Hvað varðar þá hugmynd sem reifuð hefur verið óformlega á fundinum og gengur út á það að leyfa takmarkaðar hvalveiðar, til dæmis strandveiðar, segist Árni hafa heyrt hana talsvert rædda. Eitt af því sem hefur verið mikið nefnt ef þannig veiðar verða leyfðar er að verslun með hvalaafurðir milli landa verði bannaðar. „Þá yrði minni hvati til mikilla veiða,“ segir Árni. Hann segir ómögulegt að spá fyrir um hvort þetta verður ákveðið eða ekki.

Einnig hefur verið rætt um að veiðum í vísindaskyni verði hætt, enda hafi Japanir þótt misnota þær verulega og hvalveiðum sé því í raun ekki stjórnað af ráðinu.

Ársfundinum lýkur á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
Toyota Yaris árg.2005
Til sölu, ekinn aðeins 56þ. sjálfsk., filmur, spoiler, álfelgur, sumardekk, bíll...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
TIL LEIGU
Til leigu nýinnréttuð skrifstofuherbergi í 104 Rvk. Securitas-öryggiskerfi. Tölv...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...