Loftorka óskar gjaldþrotaskipta

stækka

Mbl.is/Golli

Loftorka Borgarnesi hefur lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti. Hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns og hefur fyrirtækið verið stærsti vinnustaðurinn í sveitarfélaginu.

Fréttavefur Skessuhorns greinir frá því í dag að Loftorka Borgarnesi ehf. hafi í dag lagt inn beiðni um gjaldþrotaskipti til Héraðsdóms Vesturland. Skiptastjóri verður nú settur yfir búið.

„Það eru margar samverkandi ástæður sem valda því að þessi staða er komin upp. Gríðarlegur samdráttur á byggingamarkaði er stærsta ástæðan, þá hrun íslensku krónunnar sem hafði veruleg áhrif á skuldastöðu félagsins og í þriðja lagi eru rekstrarvandræði viðskiptavina sem ekki hafa getað staðið í skilum.  Verkefnastaðan hjá félaginu hefur þannig hrunið algjörlega,” sagði Óli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri í samtali við Skessuhorn.

Hjá Loftorku starfa nú 70 starfsmenn en þegar best gekk, árið 2007, voru þeir tæplega þrjú hundruð.

„Á síðustu dögum lá það fyrir að viðskiptabanki okkar, sem er Íslandsbanki, sá ekki grundvöll til að halda áfram þessum rekstri í núverandi mynd. Því var starfsmönnum fyrirtækisins tilkynnt í dag að fyrirtækinu yrði lokað og sótt um gjaldþrot og menn munu ekki mæta til vinnu eftir helgi,” sagði Óli Jón.

Samkvæmt heimildum Skessuhorns er vilji fyrir því meðal heimamanna að allt verði gert til að freista þess að endurvekja rekstur Loftorku, enda hefur fyrirtækið verið stærsti rekstraraðilinn í Borgarfirði.


Sjá ítarlegar
á vef Skessuhorns.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Tveir ökumenn voru í kvöld stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar ók á 136 km ...

Tekinn á 136 km hraða í kvöld

Í gær, 22:40 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli voru tveir teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í kvöld. Báðir ökumenn voru við Kirkjubæjarklaustur og ók annar þeirra á 136 km hraða. Meira »
Spákort sem sýnir veðurspá á miðnætti í kvöld.

Versnandi veður á fjallvegum

Í gær, 22:29 Versnandi veður verður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli frá því um kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nóttina. Meira »

Tilkynnti úrsögn úr félaginu

Verðlaunaafhending Félags kvenna í atvinnurekstri á dögunum.
Í gær, 21:18 Dominique Plédel, rekstraraðili Vínskólans, hefur sagt sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í mótmælaskyni. Framkvæmdastjóri félagsins staðfestir úrsögnina, en segir að lítið sé um úrsagnir undanfarna daga. Meira »

Munu skoða lífeyrissjóðina

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Í gær, 21:08 Embætti sérstaks saksóknara mun ræða skýrsluna um lífeyrissjóðina, sem birt var í dag, á næsta fundi sínum með Fjármálaeftirlitinu. Sérstakur saksóknari segir þó of snemmt að segja til um það hvort hún gefi tilefni til rannsóknar hjá embættinu. Meira »

RÚV vann verðlaun

Merki RÚV.
Í gær, 19:27 Vefur RÚV, ruv.is, var valinn besti afþreyingar- og fréttavefurinn af Samtökum vefiðnaðarins í kvöld. Í úrskurði dómnefndar segir að vefurinn sé tæknilega vel útfærður og aðgengilegur og að fáir vefir standi jafnfætis ruv.is þegar komi að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi. Meira »

Grindavík vann

Lið Grindavíkur í Útsvari 2012.
Í gær, 21:16 Grindavíkurbær fór með sigur af hólmi í Útsvari í kvöld í keppni sinni við Skagafjörð. Vinningsliðið var með 110 stig, en Skagfirðingar með 57 stig. Meira »

Mikill skákáhugi hjá stúlkum

Í gær, 20:39 Milli 60 og 70 stúlkur taka þátt í Íslandsmóti grunnskólasveita, stúlknaflokki, sem fram fer í Rimaskóla á morgun, laugardaginn 4. febrúar. Nú eru fimmtán sveitir skráðar til leiks, mun fleiri en á síðasta ári. Meira »

Fíkniefni fundust í Þorlákshöfn

Lögreglustöðin á Selfossi.
Í gær, 18:57 Fíkniefni fundust við húsleit í Þorlákshöfn í dag, skv. upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Um var að ræða 1-2 grömm af kannabisefnum og tvö grömm af amfetamíni. Meira »

Margir aka á strætórein

Í gær, 18:30 Töluvert er um að ökumenn virði ekki lög um notkun akbrauta, en þau kveða m.a. á um að þar sem sérstakar reinar eru fyrir mismunandi tegundir ökutækja skuli ökumaður nota þá rein, sem ökutæki hans er ætluð. Meira »

Eldfjall fær 13 tilnefningar

Edduverðlaunin
Í gær, 18:03 Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2012 hafa verið kunngjörðar og verða verðlaunin afhent í Gamla bíói 18. febrúar. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall, er tilnefnd til 13 verðlauna. Meira »

PIP-fyllingar verði fjarlægðar

PIP-sílikonbrjóstapúðar
Í gær, 18:15 Landlæknir telur að fjarlægja eigi PIP-brjóstafyllingar úr þeim íslensku konum sem þær bera. Þetta var ákveðið eftir að sérfræðingahópur skilaði skýrslu um fyllingarnar. Landlæknir segir að um sé að ræða falsaða púða. Meira »

Varnarlaus gagnvart kúlulánum

Skýrslan var kynnt í dag.
Í gær, 17:57 Lífeyrissjóðirnir sem keyptu skuldabréf fyrirtækja gátu ekki komið við neinum vörnum þó rekstrarforsendur fyrirtækja eða eiginfjárhlutfall breyttust verulega. Ástæðan er sú að engir skilmálar voru bréfunum að sjóðirnir gætu gjaldfellt bréfin. Meira »

„Erum að sigla í rétta átt“

Ómar Stefánsson.
Í gær, 17:50 „Þetta mjakast og kemur vonandi allt í ljós um helgina,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, en viðræður bæjarfulltrúa Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Y-lista Kópavogsbúa hafa staðið yfir síðan í gær. Meira »

Verðum að læra af reynslunni myndskeið

lifeyrir hallur
Í gær, 17:32 Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, vonast til þess að hægt verði að draga lærdóm af skýrslunni um starfsemi sjóðanna á árunum fyrir hrun sem lögð var fram fyrr í dag. Hann hafði ekki séð skýrsluna fyrr en í dag en hann sagði hana ekki hafa komið verulega á óvart. Meira »

Var þörf á gjaldeyrisvörnum?

Nefndarmenn kynntu skýrsluna um lífeyrissjóðina í dag.
Í gær, 17:29 Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor segist ekki sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá lífeyrissjóðunum að gera gjaldeyrisvarnasamninga við bankana, en sjóðirnir töpuðu miklum fjármunum á þeim. Meira »

Festu bíla á Nesjavallavegi

Merki Landsbjargar
Í gær, 17:41 Þrír hópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið til aðstoðar ökumönnum sem fest hafa bíla sína. Um er að ræða þrjár bifreiðar, tvær á Nesjavallavegi og eina við Stardal á Mosfellsheiði. Meira »

Gestirnir fóru út með áfengið

Í gær, 17:29 Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborginni eftir að komið var fram yfir leyfðan afgreiðslutíma en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. Meira »

Luna fann marijúana

Fíkniefni fundust í Herjólfi í dag.
Í gær, 17:22 Fíkniefnahundurinn Luna komst á snoðir um kannabisefni um borð í Herjólfi í dag. Efnin voru í bíl og voru eigandi bílsins og ökumaður réttindalausir. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mykjudælur fyrir drifskaft.
Væntanlegar á lager, drifskaftdrifnar dælur fyrir mykju / vatn, einnig mjög öflu...
Polaris Fusion 2007 600 cc
Allur yfirfarinn og tilbúinn á fjöll. 121" x 15" x 36.mm, negling - Brúsgrindur ...
Rúm
Rúm til sölu, springdýnur, stærð 120 x200. Verð 35.000.- Uppl. í síma 8932013...
Varanleg förðun Tattoo auabr-augnl-varir
Langar þig í mynd- tákn eða stafi? Ertu td. búin að missa augnhár-augabrúnir eða...
 
Kynningarauglýsing
Tilboð - útboð
Kynningarauglýsing Fyrirh...
Sýslumaðurinn á hvolsvelli - bifreiðauppboð

Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðna...
Stúkan hlín
Félagsstarf
jHlín 6012013119 IV/V ...
Afgreiðslustarf
Afgreiðsla/verslun
Afgreiðsla Óska eftir starfsmanni, ekki ...