Margar tilnefningar til norrænu umhverfisverðlaunanna
Alls bárust 63 tilnefningar til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009. Rúmlega helmingur tilnefninga kemur að þessu sinni frá Svíþjóð en átta tilnefningar bárust frá Íslandi. Verðlaunin verða veitt í október en þau nema 350 þúsund dönskum krónum.
Verðlaunin verða veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar og fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Flestar tilnefningar eða 35 koma að þessu sinni frá Svíþjóð. Tíu tilnefningar eru frá Finnlandi, átta frá Íslandi, sjö frá Danmörku, ein frá Noregi og ein frá Álandseyjum. Tvær tilnefningar eru í raun norrænar, norræna sendinefndin í evrópska tengslanetinu Cost Action E39 og norrænu skátasamtökin. Engar tilnefningar bárust frá Grænlandi og Færeyjum í ár.
Nokkrir þeirra sem tilnefndir eru halda áfram í aðra umferð. Dómnefnd ákveður hver hlýtur verðlaunin og tilkynnir það á fundi sem haldinn verður á Íslandi í byrjun október. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í lok október.
Innlent »
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 12. júní 2008, Innlent Marorka tilnefnd til umhverfisverðlauna
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Ármann Jakobsson hlýtur hvatningarverðlaun
- Fimmtudagur, 4. júní 2009, Innlent Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Verðlaunaður fyrir gleraugnaumgjarðir
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Áslaug tilnefnd til leikskáldaverðlauna
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli



































