Milljón plöntur á Silfrastöðum

Hjónin Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir á Silfrastöðum, eftir að …
Hjónin Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir á Silfrastöðum, eftir að þau gróðursettu miljlónustu plöntunni á jörðinni í gær. mbl.is

Milljónasta plantan var gróðursett á Silfrastöðum í Skagafirði í gær.  Þar hafa Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir stundað skógrækt frá árinu 1991. Tíu milljón skógarplöntur hafa þar með verið gróðursettar á vegum Norðurlandsskóga frá stofnun verkefnisins árið 2000. 

Starfssvæði Norðurlandsskóga er allt Norðurland, frá Langanesi í Hrútafjörð.  Nú eru 155 bændur á svæðinu með skógræktarsamninga um landssvæði sem nær yfir um 8.500 hektara. 

Árangur verkefnisins er mjög góður og áhugi bænda er mikill, skv. upplýsingum frá Norðurlandsskóga, enda skógar farnir að verða sýnilegir víða. „Skógrækt er langtímaverkefni og langt að bíða arðs í formi timburs, en skógurinn byrjar þó strax að skila ýmsum öðrum verðmætum svo sem bindingu kolefnis.  Reikna má með að sá skógur sem þegar hefur verið gróðursettur bindi árlega um 15 þúsund tonn af kolefni sem samsvarar útblæstri um 15 þúsund fólksbíla,“ segir í frétt frá Norðurlandskógum.

Samfara breyttu ástandi í þjóðfélaginu hefur skapast spurn eftir innlendu timbri.  „Hár flutningskostnaður og veikt gengi íslensku krónunnar hefur gert það að verkum að þeir sem flutt hafa inn timbur leita nú í auknum mæli eftir íslensku timbri.  Staðan er þó þannig að allt of lítið er til af skógi í landinu til að anna eftirspurn og staðfestir þar með þann málflutning skógræktarmanna í gegn um árin að íslendingar verða að stórauka skógrækt ætli þeir sér að anna innanlandsþörf fyrir timbur,“ segir í fréttatilkynningunni frá Norðurlandsskógum.

Stjórn Norðurlandsskóga eftir að hún gróðursetti tíu milljónustu plöntu verkefnisins. …
Stjórn Norðurlandsskóga eftir að hún gróðursetti tíu milljónustu plöntu verkefnisins. Frá vinstri, Sigurður Skúlason skógarvörður á Vöglum, Anna Ragnarsdóttir Formaður félagsskógarbænda á Norðurlandi og Stefán Guðmundsson fyrrverandi alþingismaður. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert