Bilun í vél Iceland Express

I háloftunum
I háloftunum Þorvaldur Örn Kristmundsson

Flugvél Iceland Express frá Billund fékk forgang til lendingar á öðrum tímanum í nótt vegna gruns um bilunar í bremsukerfi vélarinnar. Lendingin gekk áfallalaust fyrir sig samkvæmt upplýsingum frá flugmálastjórn og engan sakaði.

Á leið vélarinnar til Keflavíkur kviknaði ljós í flugstjórnarklefa sem tilkynnti um bilun í vatnaflskerfi bremsubúnaðs vélarinnar. Tvö varakerfi eru til staðar í vélbúnaði flugvélarinnar sem taka sjálfkrafa við og var því ekki um mikla hættu að ræða. Flugstjórinn óskaði þó, til að gæta fyllsta öryggis, eftir forgangs til lendingar á Keflavíkurflugvelli.

Í samræmi við þetta var þetta var vélinni mætt með nokkrum viðbúnaði en það voru fyrstu merki sem farþegar urðu varir um að ekki hefði allt verið með felldu. Í vélinni voru um 200 manns. Við lendingu var þeim tilkynnt um að tæknilegir örðugleikar hefðu verið við lendinguna.

Ekki var talin þörf á að bjóða farþegunum áfallahjálp.

Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, segir bilunina hafa verið mjög minniháttar. Vélin hafi verið yfirfarin og hún sé komin aftur í áætlunarflug.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert