Hjálparskip í óvissu á Srí Lanka
Skipið Captain Ali, sem sigldi í apríl frá Bretlandi með hjálpargögn til Tamíla á Srí Lanka, liggur enn við festar í ytri höfninni í Colombo og ekki hefur fengist leyfi til að flytja vistirnar í land. Íslendingurinn Kristján Guðmundsson er um borð í skipinu.
Indversk stjórnvöld hafa beitt sér í málinu og á föstudag var tilkynnt, að stjórnvöld á Srí Lanka hefðu fallist á ósk A. M. Krishna, utanríkisráðherra Indlands, um að indverski rauði krossinn fengi að skipa vistunum upp. Að sögn fjölmiðla á Srí Lanka liggur skipið þó enn við festar.
Skipið lagði af stað frá Ipswich í apríl með 884 tonn af matvælum, lyfjum og öðrum hjálpargögnum sem áttu að fara til Tamíla á Vannisvæðinu á norðurhluta Srí Lanka en þar fóru hundruð þúsunda á vergang vegna stríðsátaka stjórnarhers Srí Lanka og Tamíl-Tígranna.
Skipið fékk hins vegar ekki að leggjast að bryggju í Colombo. Samtökin Mercy Mission, sem útlægir Tamílar standa að, skipulögðu siglinguna og í tilkynningu frá þeim, sem fjölmiðlar á Srí Lanka vitna til, segir að liðinn sé 51 dagur frá því skipið kom síðast í land og ástand áhafnar og farþega um borð sé orðið slæmt. Skipið liggi nú við akkeri 5 mílur undan Chennai.
Þá kemur fram að farþegarnir, Uthayanan Thavarajasingam og Kristján Guðmundsson, hafi óskað eftir því formlega að fá að fara frá borði og taka næstu flugvélar til Lundúna og Íslands.
Stjórnvöld á Srí Lanka sökuðu Mercy Mission um að ætla að veita Tamíl-Tígrunum aðstoð. Samtökin neita því og segjast aðeins vera mannúðarsamtök og vilji aðstoða flóttamenn, sem nú hafast við í búðum á norðurhluta Srí Lanka.
Stjórnarherinn á Srí Lanka lýsti yfir fullum sigri á Tamíl-Tígrum í maí.
Kristján Guðmundsson var um tíma í norrænu eftirlitssveitunum á Srí Lanka.
Innlent »
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. maí 2009, Innlent 5 milljóna neyðaraðstoð til Srí Lanka
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Nýr fastafulltrúi SA í Brussel
- Fimmtudagur, 4. júní 2009, Innlent Styrkja hjálparstarf á Srí Lanka
- Fimmtudagur, 19. mars 2009, Innlent Þróunarsamvinnustofnun eingöngu í Afríku síðar á árinu
- Sunnudagur, 19. apríl 2009, Innlent Kosningakjötsúpa
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...





































