Ríkið sýknað af kröfu fyrrum Útvegsbankastjóra

Höfuðstöðvar Útvegsbankans voru í Austurstræti þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur eru nú. stækka

Höfuðstöðvar Útvegsbankans voru í Austurstræti þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur eru nú. ?

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af kröfum Axels Kristjánssonar, fyrrverandi aðstoðarbankastjóra Útvegsbanka Íslands. Axel krafðist leiðréttinga á lífeyrisgreiðslum aftur til ársins 1998 og taldi að greiða ætti hlutdeild samkvæmt svokallaðri eftirmannsreglu.

Axel Kristjánsson hóf störf hjá Útvegsbanka Íslands í mars 1954 og var fyrst ráðinn til almennra lögfræðistarfa. Rúmum áratug síðar var hann ráðinn aðallögfræðingur bankans en því starfi gegndi hann allt til 1. júní 1984 er hann var ráðinn aðstoðarbankastjóri bankans. Gegndi hann starfi aðstoðarbankastjóra ásamt starfi aðallögfræðings bankans til 1. maí 1987 en þá hafði honum verið sagt upp störfum nokkru áður.

Með setningu laga um stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands, sem tóku gildi 19. mars 1987, var ríkisbankinn Útvegsbanki Íslands lagður niður og við réttindum og skyldum hans tók nýtt hlutafélag í eigu ríkissjóðs. Með tilkomu laganna var öllu starfsfólki ríkisbankans sagt upp störfum og það síðan allt endurráðið til hins nýja banka, að fjórum einstaklingum undanskildum, þ.e.a.s. bankastjórunum þremur og Axel Kristjánssyni.

Tveimur dögum eftir að hlutafélagsbankinn var formlega stofnaður var gefin út ákæra á hendur fjórmenningunum vegna Hafskips/Útvegsbankamálsins. Þáverandi ráðherra bankamála sá sér ekki fært vegna ákærunnar að óska eftir því að þeir yrðu endurráðnir eins og raun varð á um nánast allt annað starfsfólk ríkisbankans.

Uppsögnin stóð því og aðstoðarbankastjórinn hóf töku eftirlauna að loknum uppsagnarfresti sem var eitt ár.

Samkvæmt þágildandi lögum um Útvegsbanka Íslands, ákvað bankaráð laun og kjör bankastjóra og aðstoðarbankastjóra, þ.m.t. eftirlaun. Áður en Axel sótti um starf aðstoðarbankastjóra, og var ráðinn í það starf, kveður hann bankaráðið margoft hafa ákveðið og bókað í fundargerðarbók sína að laun bankastjóra skyldu vera hin sömu og laun bankastjóra Landsbanka Íslands. Þá hafi bankaráðið og ákveðið að laun aðstoðarbankastjóra skyldu vera 80% af launum bankastjóra. Þessi kjör hafi því ekki verið ákveðin með samningum, heldur einhliða af bankaráði. Þegar maðurinn var ráðinn aðstoðarbankastjóri kveðst hann hafa tekið laun samkvæmt kjarasamningum bankamanna, en eftir það hafi hann tekið laun samkvæmt ákvörðun bankaráðs.

Axel Kristjánsson vísaði í samþykkt bankaráðs Útvegsbanka Íslands á fundi þess 27. apríl 1967 þar sem segir að þegar bankastjóri hafi náð 60 ára aldri, eigi hann rétt til eftirlauna eftir starfstíma hans í bankanum. Fyrir 10 ára starf greiðist í eftirlaun 70% af fastakaupi bankastjóra, eins og það er á hverjum tíma. Samkvæmt viðmiðunarreglu bæri aðstoðarbankastjóranum því að fá 80% af þeirri upphæð á hverjum tíma.

Nokkrum árum eftir að Axel Kristjánsson hóf töku eftirlauna kveðst hann hafa orðið þess áskynja, eftir að hafa kynnt sér efni greinargerðar sem Ríkisendurskoðun sendi frá sér í janúar 1994 um laun og önnur starfskjör helstu yfirmanna ríkisbanka og sjóða, að eftirlaun hans voru vanreiknuð. Í kjölfarið hafi vegferð hans hafist í því skyni að fá leiðréttingu sinna mála. Vegferðin hafi formlega hafist árið 1996 og hafi staðið yfir síðan, eða í hartnær 12 ár og enn sjái ekki fyrir endann á henni.

Axel telur sig eiga inni umtalsverðar fjárhæðir og vitnaði til þess að viðmiðunarfjárhæð lífeyrisgreiðslna til hans eins og hún var 1. janúar 1998 hefði átt að fylgja vísitölu lífeyrisskuldbindinga fyrir opinbera starfsmenn frá 1. janúar 1998 til 1. nóvember 2008 en frá og með þeim degi skuli viðmiðunarfjárhæð lífeyrisgreiðslna miðast við laun bankastjóra Nýja Landsbanka Íslands, eins og þau eru á hverjum tíma.

Samkvæmt ákvörðun bankaráðs Landsbanka Íslands frá í nóvember 1997 miðaðist mánaðarleg viðmiðunarfjárhæð lífeyris bankastjóra bankans við 550 þúsund krónur. Ef reiknað er út frá launakjörum bankastjóra nýju ríkisbankanna væru lífeyrisgreiðslur nær einni milljón króna til aðstoðarbankastjórans fyrrverandi.

Héraðsdómur Reykjavíkur sagði kröfur Axels hvorki styðjast við samninga né ákvæði laga eða reglna. Ekki hefði verið sýnt fram á annað en að eftirlaun hans sæti sömu viðmiðum og annarra sem svipað eru settir. Dómurinn fellst ekki á það með Axel að ákvarðanir varðandi eftirlaun hans hafi verið ómálefnalegar eða andstæðar lögum eða stjórnarskrá.

Dómurinn sýknaði íslenska ríkið af öllum kröfum hans en taldi rétt að hvor aðili um sig bæri sinn kostnað af málinu.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
Kaupi mynt og seðlasöfn
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Met og geri tilboð á staðnum. Áralöng reynsla. K...
Vatnskassaviftur - tilboð
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...