200 milljarðar á gjalddaga 2011
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Ómar Óskarsson
Gjalddagar stórra gjaldeyrislána, sem ríkissjóður tók árin 2006 og 2008, eru árið 2011. Nemur sú skuld um 200 milljörðum króna en lánin voru á sínum tíma tekin til að styrkja gjaldeyrisforðann.
„Það er auðséð að menn ráða ekkert við það í endurgreiðslu, allra síst í þessu árferði, þannig að þetta þarf að endurfjármagna með einhverjum hætti,“ segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Þá nema skuldir gömlu bankana við Seðlabanka Íslands, sem ríkissjóður yfirtók, tæpum 300 milljörðum króna að sögn Indriða.
Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði um 130% landframleiðslu, um 1800 milljarðar, á þessu ári. Kemur þetta fram í skýrslu fjármálaráðherra um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum. Ekki er reiknað með skuldbindingum vegna Icesave í þessari tölu en Indriði segir að þær muni þegar upp er staðið nema 3-400 milljörðum. Ríkissjóður byrjar ekki að greiða þá fjárhæð fyrr en árið 2016.
Fram kom hjá Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, á opnum borgarafundi um Icesave í gærkvöldi, að skuldbindingarnar vegna Icesave væru ekki stærsta áhyggjuefnið heldur væru aðrir nærtækari hlutir hættulegri íslenska þjóðarbúinu.
Að sögn Indriða verða önnur lán og vextir af þeim, sem þarf að greiða áður en greiðslur vegna Icesave-skuldbindinganna hefjast „stærri biti að kyngja heldur en sú greiðslubyrði sem verður eftir 2016.“
Skýrsla fjármálaráðherra verður tekin fyrir á Alþingi í dag.
Bloggað um fréttina
-
Björn Heiðdal Heilög Jóhanna og séra Steingrímur. -
Haraldur Haraldsson 200 milljarðar á gjalddaga 2011/í viðbót við allt klabbið !!!!! -
Guðjón Þór Þórarinsson Hvernig eigum við að standa undir þessu rugli.? -
Jón Lárusson Lán er engin lausn -
Ómar Geirsson Snillinganna ráð, -
Guðni Karl Harðarson Ekki reiknað með hverju? -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Að stjórnmálamenn sem komu að þessu skuli enn vera á ...
Innlent »
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. september 2009, Innlent Niðurskurður er óhjákvæmilegur
- Föstudagur, 6. júní 2008, Innlent Fyrsta skóflustunga að álveri
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Þungar byrðar á ríkinu
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent 183 milljarða gjaldeyrisforðalán til greiðslu 2011
- Föstudagur, 26. febrúar 2010, Innlent Munar 50 milljörðum milli tilboða
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































