Samningur um atvinnuátak í Garðabæ

frá vinstri: Erla Bil Bjarnardóttir garðyrkjustjóri, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Magnús Gunnarsson formaður Skógræktarfélag Íslands og ... stækka

frá vinstri: Erla Bil Bjarnardóttir garðyrkjustjóri, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Magnús Gunnarsson formaður Skógræktarfélag Íslands og Linda Björk Waage verkefnastjóri hjá Skógræktarfélagi Íslands.

Garðabær, Skógræktarfélag Íslands og Skógræktarfélag Garðabæjar hafa gert með sér samning um atvinnuátaksverkefni þar sem skipulögð hafa verið störf fyrir 100 manns auk verkstjórnar í tæpa tvo mánuði sumarið 2009.

Samningurinn er hluti af Atvinnuátaksverkefni sem Skógræktarfélag Íslands hefur haft frumkvæði að í samvinnu við Vinnumálastofnun, ríkissjóð og sveitarfélög.

Sumarvinna ungmenna
Samningurinn var samþykktur á fundi bæjarráðs Garðabæjar 9. júní sl. og undirritaður í dag þriðjudaginn 30. júní. Samningstímabilið er frá 2. júní - 31. júlí 2009. Samningur þessi veitir stórum hluta sumarstarfsfólks í Garðabæ vinnu í sumar, um 100 ungmenni úr Garðabæ taka þátt í verkefninu ásamt átta verkstjórum og einum yfirverkstjóra.

Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að Garðabær beri ábyrgð á ráðningu þess starfsfólks sem þarf til að sinna verkefnunum, en Atvinnuátaksverkefni Skógræktarfélag Íslands greiðir fyrir aðföng sem þarf til að sinna verkefnunum á svæðunum, s.s. aðstöðu fyrir starfsfólk, ofaníburð í stíga, plöntur o.fl.

Fjölbreytt verkefni
Skógræktarfélag Garðabæjar kemur að verkefninu í Garðabæ með því að skipuleggja fjölbreytt verkefni er falla undir átakið á skógræktar- og útivistarsvæðum félagsins og í Heiðmerkurhluta Garðabæjar.

Meðal verkefna sem ráðist er í er ruslatínsla á svæðunum, hefting útbreiðslu lúpínu, gróðursetning trjáplantna, ofaníburður og annað viðhald útivistarstíga, gerð útivistar- og útsýnisstígs á Smalaholti og gamlar gaddavírsgirðingar eru fjarlægðar. Einnig er áætlað að stika út legu „Græna stígsins“ í sumar auk margvíslegra annarra verkefna.

Græni trefilinn
Starfsvettvangur skógræktarfélaganna er í Græna treflinum sem umliggur höfuðborgarsvæðið ofan byggða. Þar er í undirbúningi nýr malbikaður göngustígur sem hefur fengið vinnuheitið „Græni stígurinn.“

Stígurinn verður þrír metrar á breidd og mun liggja frá Kaldárseli í Hafnarfirði og þræða áhugaverðar náttúruperlur og útivistarsvæði í skjóli vaxandi skógarteiga upp undir Esjuhlíðar, alls um 50 km samfellda leið. Græni stígurinn er í skipulagsferli, og er því ekki gert ráð fyrir að hann verði lagður í Garðabæ í ár, en vonast er til þess að hann komist til framkvæmda í áföngum á næstu árum. Af honum er um 9,5 km innan lögsögu Garðabæjar eða um 20 % stígsins.

Skógur og útivist
Atvinnuátakið skógur og útivist er verkefni sem hófst á vormánuðum 2009 og stendur til og með ársins 2011 og hefur hlotið styrk frá ríkissjóði. Átakið mun veita fjölda fólks sumarvinnu við undirbúning og snyrtingu svæðanna sem Græni stígurinn mun liggja um. Græni stígurinn mun efla útivist almennings og auðvelda aðgengi allra að útivist um svæðin ofan byggðar.
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HOBBY 540 UFE 2006 M. ISABELLA FORTJALDI TIL SÖLU
Mjög vel með farið - lítur vel út - reyklaust - sólarsella. Uppl. í s. 893 5179...
Ódýr gisting í Laugardal - Rvk
Kíkið á. www.guesthousehelga.weebly.com S. 892-3451 ...
Kæli- og frystiklefar - allar stærðir
Kæli- og frystiklefar sem eru einstaklega auðveldir í uppsetningu. Hægt er að fá...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
Mjög góð og lítið notuð, Lítur út eins og ný, Fæst á aðeins 15000. ef tekin e...
 
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...