Fyrsti 20 punda laxinn veiddist í Aðaldalnum

Ragnheiður Thorsteinsson segist hafa kysst þennan stóra hæng bless og þau hafi sammælst um að ... stækka

Ragnheiður Thorsteinsson segist hafa kysst þennan stóra hæng bless og þau hafi sammælst um að hann skyldi strauja beint upp á fjall svo hann geti dúllað sér þar með flottri hrygnu.

Fyrsti 20 punda lax sumarsins er kominn á land úr Laxá í Aðaldal.

Þennan væna fisk tók ungur Dani í landi Haga og notaði til þess Black Ghost-straumflugu. Það tók hann um hálftíma að landa laxinum. Ekki var viðureignin átakalaus því stöngin brotnaði í látunum.

Laxveiðin hefur farið vel af stað. Þannig náðist 31 lax fyrsta daginn sem veitt var í Víðidalsá.  Ragnheiður Thorsteinsson var við veiðar í Langá á Mýrum um helgina. „Við fengum þrjá. Það gekk ágætlega. Það komu 7-8 fiskar á morgnana en yfirleitt rólegra seinnipartinn."

Ragnheiður sagði veðrið hafa verið alltof gott fyrir veiði, sólin skinið glatt og hiti farið yfir tuttugu gráður. „Laxinn er kominn ótrúlega langt upp eftir ánni, það er fiskur út um allt þarna. Mér finnst ótrúlega skrítið að vera með þessa maðkaveiði í byrjun sumars. Það er fullt af fólki búið að maðka alla þessa flottu staði áður en maður kemur að þeim.« sagði Ragnheiður, sem aðeins veiðir á flugu.

Hún lét þetta þó ekki slá sig út af laginu og setti í stórlax. „Ég náði honum í hyl sem heitir Bárðarbunga og er númer 31 og hálft. Það hafði sést fiskur þarna. Svo á slaginu hálfellefu tók hann hjá mér rauða Frances-keilu og ég barðist við hann í tuttugu mínútur. Hann var nýgenginn með halalús eftir öllum hryggnum. Hann var svo sterkur og áin er straumhörð þarna, ég var gjörsamlega búin á því! Þetta var ógeðslega skemmtilegur fiskur. Svo þegar hann var búinn að berjast við mig, eða ég við hann, þá sá ég að blæddi pínulítið úr honum. Ég sá fluguna aftast í tungunni á honum og klippti bara á tauminn og sleppti honum."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Íbúð til leigu í Garðinum
4 herbergja Íbúð til leigu í Garðinum á Suðurnesjum. Laus 1. júlí. Langtímaleiga...
Peougut 406. Sjálfskiptur, nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Peougut 406 árg. 1997, ekinn 169 þúsund km. Bíllinn er sjálfskiptur og ...
Toyota Yaris
Toyota yaris 2004 árg. Ekinn 114 þ., beinskiptur og skoðaður 2013. Mjög vel með ...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...