Greiðsla frá IMF í ágúst
eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) á Íslandi, segir að greiðsla (tranche) númer tvö af láninu frá sjóðnum verði líklega afgreidd í ágúst næstkomandi. Upphaflega átti greiðslan að berast í febrúar síðastliðnum, en hefur verið frestað tvívegis.
Fyrsti hlutinn af 2,1 milljarðs dollara láni IMF, sem var 827 milljónir dala, barst Seðlabankanum í lok nóvember á síðasta ári. Eru þeir fjármunir geymdir á reikningi Seðlabanka Íslands hjá bandaríska seðlabankanum í New York. Hafa þeir ekki verið hreyfðir, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum, en um eiginlegan gjaldeyrisvaraforða er að ræða.
Afgangurinn af láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verður greiddur í átta jöfnum áföngum, um 155 milljónir dollara í hvert sinn, á þriggja mánaða fresti. Verður greiðslan í ágúst fyrsta greiðslan af þessum átta. Greiðslurnar átta munu haldast í hendur við ársfjórðungslega endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
„Tímasetning endurskoðunar byggist mjög mikið á því hvaða aðgerðir stjórnvalda liggja fyrir áður. Svo þetta eru ekki fyrirfram ákveðnar dagsetningar, þrátt fyrir ársfjórðungslega endurskoðun og væntingar um að ljúka þessu fyrr,“ segir Rozwadowski. Hann segir að endurskoðun áætlunar hafi seinkað vegna tæknilegra vandamála sem tengjast aðallega endurreisn bankakerfisins. Vinna við uppskiptingu bankanna hafi tekið mun lengri tíma en lagt hafi verið upp með. Kosningar og breytingar í stjórnkerfinu hafi einnig sett strik í reikninginn. „Okkar reynsla er sú að það hægist verulega á útfærslu efnahagsáætlunar í kringum kosningar. Það er mjög eðlilegt.“
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson En hvað ætla menn að gera við þessa peninga??? -
Axel Jóhann Axelsson Lánasöfnun -
Þórður Björn Sigurðsson Eru aðrir valkostir í stöðunni?
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 21. apríl 2009, Innlent Órói seinkar vinnu
- Laugardagur, 16. maí 2009, Innlent Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni
- Fimmtudagur, 27. nóvember 2008, Innlent IMF byrjaður að lána Íslandi
- Föstudagur, 21. nóvember 2008, Innlent Seðlabankinn stjórnar ráðstöfun IMF lánsins
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Sendinefnd AGS á Íslandi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































