Aukin þjónusta við ungabörn

Mynd úr safni Morgunblaðsins. stækka

Mynd úr safni Morgunblaðsins. mbl.is/Kristinn

Þjónusta Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar við ungabörn hefur farið mjög vaxandi undanfarin tvö ár og verður enn aukin í haust. Um 30 af hundraði fleiri börn hafa verið heyrnarmæld á stofnuninni sjálfri, en aukningin er yfir 200% þegar horft er til allra þeirra barna sem hafa verið heyrnarmæld á stofnuninni og inná spítölum, en samtals voru heyrnarmæld um 4.300 börn á árinu 2008.

Þetta kemur fram í frétt frá stöðinni.

„Heyrnar- og talmeinastöðin stefnir að því að heyrnarmæla að minnsta kosti 95% allra barna sem fæðast á sjúkrahúsum landsins, en í þessu felst mikið öryggi fyrir þá nýju einstaklinga sem njóta munu þjónustunnar. Á árinu 2008 náðist að mæla tæplega 94% allra fæddra barna á Landspítalanum og talan hefur enn hækkað ef fyrstu mánuðir ársins 2009 eru skoðaðir.“

Ennfremur segir:

„Árangurinn hefur orðið betri eftir því sem á hefur liðið og má það rekja til árvekni þeirra sem umsjón hafa með mælingunum. Einnig er ljóst að foreldrar og annað fagfólk sem sinnir börnum er meðvitaðra um verkefnið og að mögulegt er að heyrnarmæla nýfædd börn. Þannig hefur aðsókn hjá HTÍ farið vaxandi og er 30% aukning í komu barna á HTÍ það sem af er árinu 2009.

Í apríl 2007 var farið að heyrnarmæla börn sem fæddust á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Á tveggja ára tímabili hafa rúmlega 6000 börn verið heyrnarmæld eða um 79% allra barna sem fæddust á þessu tímabili á sjúkrahúsinu. Tvö börn hafa greinst heyrnarlaus og hafa farið í kuðungsígræðslu, þrjú til viðbótar eru heyrnarskert en 83 börn eru enn í frekari rannsóknum og hafa 47 af þeim staðist heyrnarmælingu á öðru eyra.

Í upphafi fóru þrír hjúkrunarfræðingar á námskeið til að læra að heyrnarmæla en reyndin hefur orðið sú að einn hjúkrunarfræðingur hefur sinnt verkefninu að mestu. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar hafa að einhverju leyti leyst hana af í sumarfríum. Á fyrstu átta mánuðum verkefnisins þurfti að vísa rúmlega 5% barna til frekari mælinga á HTÍ en á næstu tólf mánuðum fór hlutfallið niður í 3,6% og á síðustu þremur mánuðum verkefnisins er hlutfallið komið niður í 2% sem verður að teljast mjög gott. Tölurnar staðfesta mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsmaðurinn sem framkvæmir mælinguna hafi fengið góða þjálfun við mælingar til að áreiðanleikinn sé sem mestur.

Ákveðið hefur verið að halda áfram að heyrnarmæla börn sem fæðast á LSH og hefur verið undirritaður samningur þar um. Þá er unnið að því að bjóða börnum sem fæðast í Reykjanesbæ, á Selfossi og á Akranesi að koma á HTÍ til heyrnarmælingar og verður sú þjónusta foreldrum að kostnaðarlausu. Þá er stefnt að því að byrja að heyrnarmæla börn sem fæðast á Akureyri frá og með september 2009.

HTÍ er með aðstöðu á Heilsugæslustöðinni á Akureyri og mun heyrnarfræðingur fara vikulega norður og sjá meðal annars um heyrnarmælingar á nýburum. Um 95% barna fæðast á þessum fimm stöðum á landinu. Foreldrum barna sem fæðast annars staðar stendur til boða að koma með börn sín á HTÍ í Reykjavík eða á Akureyri.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Negld vetrardekk til sölu
Stærð: 195/65 R15, lítið notuð. Kosta 75 þús. ný, seljast á 40 þús. stgr. Upplýs...
NOTAÐ&NÝTT
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við Byko. Mikið úrval af fallegum ...
Vinnuskúr - Garðskúr
Gamall sumaraðst.skúr til sölu.Er á hjólum með beisli,stillilappir á hornum.3,3...
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...