Mosfellsbær mótmælir forgangsröðun í vegagerð
Bæjarráð Mosfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri forgangsröðun verkefna í vegagerð sem samgönguráðherra, Kristján Möller, hefur tilkynnt um.
Í bókun sem bæjarráð samþykkti í morgun og sendi samgönguráðherra og þingmönnum segir að í kjölfar ákvörðunar um niðurskurð í vegagerð, sé tvöföldun Vesturlandsvegar við Mosfellsbæ frestað sem og öðrum brýnum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma tilkynnt um að ákvörðun hafi verið tekin um að ráðast í gerð jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.
Þá segir að tvöföldun hringtorgs og gerð hljóðmana meðfram Vesturlandsvegi, sem tilbúið er til útboðs, og átti að bjóða út í þessum mánuði ásamt tvöföldun á kaflanum frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi, séu afar brýnar framkvæmdir fyrir íbúa Mosfellsbæjar, sem og þá sem ferðast um þennan fjölfarna vegarkafla. Yfir sumartímann eru það 15.750 bílar á dag sem aka þennan vegakafla á Vesturlandsvegi og samsvarar það1,4 milljónum bíla á tímabilinu júní til ágúst.
„Vesturlandsvegur er einn hættulegasti þjóðvegur landsins og liggur hann þvert í gegnum Mosfellsbæ. Á síðustu áratugum hafa orðið fjölmörg banaslys innan bæjarmarka Mosfellsbæjar. Á þeim stutta kafla sem fresta á framkvæmdum við hafa orðið þrjú banaslys og að auki fjöldi alvarlegra slysa á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Þingvallahringtorgi. Umferð er mjög þung á þessum kafla og umferðateppa algeng á álagstímum. Á síðustu tveimur árum hafa orðið tíu umferðaróhöpp og minniháttar slys á kaflanum frá Álafosshringtorgi að Áslandi. Að auki verða íbúar við Vesturlandsveg fyrir verulegri lífsgæðaskerðingu vegna umferðarhávaða og tafa vegna mikillar umferðar í gegnum bæinn.
Í ljósi þessa er ótækt að fresta framkvæmdum við hringtorg við Álafossveg og gerð hljóðmana við Vesturlandsveginn lengur en orðið er.
Mosfellsbær skorar á samgönguráðherra að endurskoða ákvörðun sína um forgangsröðun verkefna í vegagerð með bætt umferðaröryggi,“ segir í bókun bæjarráðs Mosfellsbæjar.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. mars 2010, Innlent Tillögur um einkaframkvæmd
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Óskiljanlegt að ráðherra gangi á bak orða sinna
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Mótmæla forgangsröðun í samgöngumálum
- Föstudagur, 31. október 2008, Innlent Mosfellsbær tekur við rekstri íþróttamiðstöðvar
- Þriðjudagur, 10. febrúar 2009, Innlent 12% dýrara að fara í Herjólf
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































