Óskiljanlegt að ráðherra gangi á bak orða sinna
Bæjarráð Hveragerðisbæjar mótmælir harðlega þeim yfirlýsingum sem fram hafa komið um frestun framkvæmda við tvöföldun Suðurlandsvegar sem hefjast áttu á þessu ári og að aðrar framkvæmdir verði settar framar í forgangsröðina.
Í bókun bæjarráðs frá því í morgun segir að það sé með öllu óskiljanlegt að ráðherra skuli ganga á bak orða sinna sem féllu á fundi með sveitarstjórnarmönnum Suðurlands þann 25. mars síðastliðinn.
„Að bera því við að skipulagsmálum sveitarfélaganna sé um að kenna er ekki eingöngu óskiljanlegt heldur fráleitt með öllu. Á umræddum fundi í mars kom skýrt fram hjá bæði ráðherra og Vegamálastjóra að skipulagslega væri ekkert því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir við fyrstu áfanga tvöföldunar strax í haust. Skipulagsvinnu Ölfusinga er lokið og Hvergerðinga er á lokastigi vegna vegarins á leiðinni frá Litlu kaffistofu að Hveragerði og ekkert því til fyrirstöðu að bjóða út þá áfanga strax í haust,“ segir í bókun bæjarráðs Hveragerðisbæjar.
Ráðið ítrekar fyrri bókanir Hvergerðinga vegna nauðsynjar þess að í tvöföldun Suðurlandsvegar verði ráðist nú þegar.
„Löngu er komið fram að vegurinn milli Hveragerðis og Selfoss er hættulegasti vegkafli landsins um það er ekki deilt. Umferðarþungi er einnig með þeim hætti að núverandi Suðurlandsvegur ber hann ekki, hvað þá þegar allri umferð vegna nýrrar Bakkafjöruhafnar verður beint á veginn í óbreyttri mynd. Því er það skýlaus krafa bæjarráðs Hveragerðisbæjar að ekki verði horfið frá fyrri áformum um tafarlausa tvöföldun Suðurlandsvegar og fyrstu áfangar verksins boðnir út á haustmánuðum,“ segir í bókun bæjarráðs.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Tvöföldun Suðurlandsvegar er forgangsmál
- Fimmtudagur, 2. júlí 2009, Innlent Mosfellsbær mótmælir forgangsröðun í vegagerð
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Aldís áfram bæjarstjóri í Hveragerði
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Sveitarfélög tefja vegabætur
- Mánudagur, 4. maí 2009, Innlent Hitaveita Selfoss hækkar um 15%
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































