Fréttaskýring: Sunnlendingar þrýsta á um úrbætur

Stjórnmálamenn á Suðurlandi áttu fund með samgönguráðherra í gær. stækka

Stjórnmálamenn á Suðurlandi áttu fund með samgönguráðherra í gær. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson - magnush@mbl.is

Eitt af fáum málum sem allir stjórnmálamenn á Suðurlandi, þvert á flokksstarf og pólitískar hugsjónir, eru sammála um er að forgangssamgönguframkvæmd eigi að vera breikkun Suðurlandsvegar. Áhersla hefur verið lögð á 10,5 km. langan kafla vegarins milli Selfoss og Hveragerðis. Umferð hefur þyngst mikið á undanförnum árum á þessu svæði. Tæplega 7.000 bílar hafa farið um vegarkaflann á degi hverjum að meðaltali sé horft til áranna 2004 til og með 2008.

Umferðin hefur verið að þyngjast mikið samhliða uppbyggingu sumarhúsabyggðar á Suðurlandi, og einnig aukinni umferð íbúa til höfuðborgarsvæðisins til að sækja vinnu. Til að mynda var umferðin næstum helmingi minni fyrir áratug.

Slysin hreyfa við

Það eru fyrst og fremst slysin á Suðurlandsvegi sem hafa leitt til þeirrar miklu samstöðu um brýna nauðsyn þess að breikka Suðurlandsveg. Á árunum 1972 til 2007 hafa 58 látið lífið í umferðarslysum á Suðurlandsvegi. Flestir þeirra, eða 42, hafa látist í árekstrum, oftast nær tveggja bíla úr gagnstæðum áttum. Þá hafa 14 látist í bílveltum og 2 gangandi vegfarendur hafa látið lífið þegar keyrt var á þá. Verstu slysaárin á veginum eru 1995, 2001 og 2007. Árið 1995 létust 7 á veginum en hin tvö árin fjórir. Slysin árin 2007 urðu með skömmu millibili á sumarmánuðum og hreyfðu þau við Sunnlendingum sérstaklega. Minningarathafnir voru haldnar og sameinuðust stjórnmálamenn á Suðurlandi, bæði í sveitarstjórnum og á Alþingi, um að beita öllum tiltækum ráðum til þess að þrýsta á um breikkun vegarins og frekari aðskilnað akstursbrauta. Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi, og þingmenn kjördæmisins, funduðu með Kristjáni Möller samgönguráðherra í gær. Ekki síst vegna þess að Kristján lét þau orð falla í viðtali við Morgunblaðið 29. sl. að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng og Samgöngumiðstöð í Vatnsmýri gætu hafist á undan breikkun vegarkafla Suðurlandsvegar, ef leið einkaframkvæmdar yrði farin. Þá gætu lífeyrissjóðirnir komið að fjármögnun framkvæmda en forsvarsmenn þeirra hafa sagt að um 100 milljarðar gætu komið frá sjóðunum á næstu fjórum árum til framkvæmda.

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og jafnframt fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, sagði að loknum fundi að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir ef stjórnvöld kysu að gera það. „Staða mála er auðvitað flókin, í ljósi efnahagsaðstæðna, og óvissan mikil. Stjórnvöld vinna nú að því að forgangsraða framkvæmdum og niðurstaðan verður ljós 1. september.“

Iðnaðar-, heilbrigðis-, fjármála-, og samgönguráðherra hafa skipað starfshóp sem meta á hvaða framkvæmdir eiga að njóta forgangs í einkaframkvæmd.

58 létust í umferðarslysum á Suðurlandsvegi frá 1972 til og með 2007

10,5 km langur vegarkafli milli Selfoss og Hveragerðis verður breikkaður í 2+2 og 2+1

7 létust á Suðurlandsvegi í bílslysum árið 1995 sem er það mesta á einu ári á einum og sama veginum

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Tabbert DaVinci 07, 540 dekurhús m.kojum
Tabbert DaVinci 2007 kojuhús. Einstaklega vel með farið. 6 svefnpláss. Stórt for...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
2-3 herbergja íbúð óskast í Rvk
2-3 herbergja íbúð óskast fyrir tvær reglusamar og rólegar vinkonur, helst í hve...
Sorptunnugrind
Sorptunnan lítur mun betur út og þú getur fest grindina við vegg eða stétt þanni...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...