Ummæli í DV dæmd dauð og ómerk
Ummæli um Orra Hauksson, stjórnarformann Skjás eins, sem birtust í DV þann 29. september 2006 voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd dauð og ómerk. Er 365-miðlum ehf., sem gáfu DV út á þeim tíma, gert að greiða Orra 300 þúsund með dráttarvöxtum í skaðabætur auk þess að greiða 120 þúsund í málskostnað og 120 þúsund krónur til að standa straum af birtingu dómsins.
Í dagblaðinu DV birtist þann 29. september 2006 grein með fyrirsögninni: „Skilnaðarfaraldur skekur Skjá einn.“ Í greininni er fjallað um velgengni sjónvarpsstöðvarinnar og einkalíf stjórnenda hennar, en Orri var á þessum tíma stjórnarformaður Skjás eins.
Ummælin um Orra voru eftirfarandi: „Á sama tíma er allt í tómu tjóni í einkalífi yfirmanna stöðvarinnar, þeirra Magnúsar Ragnarssonar og Orra Haukssonar.“
„[…] gengur yfirmönnum stöðvarinnar illa að fóta sig í einkalífinu.“
Framkvæmdastjóri stöðvarinnar, Magnús Ragnarsson, höfðaði einnig mál vegna ummælanna auk tveggja ummæla til viðbótar. Voru ummælin öll dæmd dauð og ómerk með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem Hæstiréttur staðfesti að því er varðar ómerkingu ummæla, með dómi uppkveðnum 11. desember 2008. Þá voru 365 miðlar dæmdir til að greiða Magnúsi miskabætur að fjárhæð 600.000 krónur og 240.000 krónur til að standa straum af birtingu dómsins.
Segir í niðurstöðu héraðsdóms í dag að kröfu um ómerkingu ummælanna hafi ekki verið mótmælt af hálfu 365 miðla. Eins liggi fyrir að Hæstiréttur hafi dæmt ummælin dauð og ómerk að kröfu Magnúsar Ragnarssonar, þáverandi framkvæmdastjóra Skjás eins. „Verður hér litið svo á að stefnandi hafi lögvarða hagsmuni af því að ummælin verði dæmd dauð og ómerk að því er hann varðar einnig og verður því orðið við kröfu hans um ómerkingu ummælanna," að því er segir í niðurstöðu héraðsdóms í dag.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Dæmdur á ný fyrir meiðyrði
- Fimmtudagur, 30. apríl 2009, Innlent Ummæli um Goldfinger dæmd ómerk
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Ummæli ómerkt
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Ummæli í Ísafold dæmd ómerk
- Þriðjudagur, 24. júní 2008, Innlent Fór með rifrildið fyrir dóm
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































