Dæmdur fyrir líkamsárás og líflátshótanir

stækka

mbl.is

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás á fyrrum sambýliskonu sína og barnsmóður á heimili hennar þar sem þrjú ung börn þeirra voru. Þá réðist maðurinn á lögreglumenn og hótaði þeim lífláti.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa að kvöldi 22. september 2008 ruðst í heimildarleysi inn á heimili fyrrverandi sambýliskonu sinnar, ýtt við henni með ógnandi hætti og hótað henni lífláti og gripið með höndunum um háls og kverkar hennar og hert að, með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgu, eymsli og húðhrufl vinstra megin á hálsi og húðrispu á holhönd.

Þá var maðurinn ákærður fyrir eignaspjöll en hann eyðilagði síma konunnar. Ennfremur var maðurinn ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa skömmu eftir árásina á konuna, ráðist með ofbeldi að lögreglumanni, sem var að gegna skyldustörfum.Maðurinn greip með höndunum um háls og kverkar lögreglumannsins. Maðurinn var handjárnaður og fluttur í lögreglubíl, en þar sparkaði maðurinn í átt að lögreglumönnum og hótaði þeim ítrekað lífláti. Þegar hann hafði verið fluttur á lögreglustöð réðist maðurinn með ofbeldi og hótunum um ofbeldi að lögreglumanni, sem var að gegna skyldustörfum, en maðurinn réðist að lögreglumanni og hótaði honum lífláti.

Maðurinn játaði að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína og eyðilagt síma hennar en kvaðst muna atburði eftir það óljóst.

Samkvæmt sakavottorði á maðurinn nokkuð langan brotaferil að baki. Þann 18. október 1990 var hann dæmdur í fjörutíu og fimm daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir auðgunarbrot og brot gegn umferðarlögum.

Í  janúar 1992 var maðurinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir auðgunarbrot og umferðarlagabrot.

Í maí 1998 var maðurinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, enn fyrir auðgunarbrot.

Í mars 2004 var maðurinn dæmdur í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir auðgunarbrot og umferðarlagabrot.

Í desember 2007 var maðurinn dæmdur til greiðslu 225.000 króna sektar og sviptur ökurétti í þrjú ár og sex mánuði fyrir akstur undir áhrifum.

Í maí síðastliðnum var maðurinn dæmdur til greiðslu 100.000 króna sektar fyrir brot gegn nálgunarbanni sem sett var á hann vegna ítrekaðs ónæðis gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni og fjölskyldu hennar.

Í dómi héraðsdóms segir að brot mannsins hafi beinst gegn fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður á heimili hennar þar sem þrjú ung börn þeirra voru. Þá liggi fyrir að nálgunarbann var sett á ákærða vegna ítrekaðs ónæðis gagnvart konunni og fjölskyldu hennar. Verði allt þetta virt manninum til refsiþyngingar. Dómurinn taldi fjögurra fangelsi hæfilega refsingu en ekki þóttu skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.

Konan krafðist rúmlega 400 þúsund króna í skaðabætur en dómurinn dæmdi henni 300 þúsund króna bætur.

Dómur héraðsdóms

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nissan Patrol -TILBOÐ AÐEINS ÞESSA HELGI
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Ásett verð 1....
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...