Fjórðungur orðið fyrir ofbeldi
Tæplega fjórðungur íslenskra kvenna, sem annað hvort eru í sambúð eða giftar, hefur orðið fyrir kynferðislegu, andlegu eða líkamlegu ofbeldi af hálfu maka síns, samkvæmt nýrri rannsókn sem kynnt er í tímaritinu Journal of Advanced Nursing. Tæplega þrjú þúsund konur tóku þátt í rannsókninni.
Rannsóknin er unnin af Erlu Kolbrúnu Svavarsdóttur, sem stýrði rannsókninni og Brynju Örlygsdóttur. Báðar eru með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði.
Alls tóku 2.746 konur þátt í rannsókninni og leiðir rannsóknin í ljós að andleg og líkamleg heilsa kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi, hvort heldur það er líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt, er marktækt verri en þeirra kvenna sem aldrei hafa orðið þolendur ofbeldis. Kynbundið ofbeldi hefur áhrif á heilsu kvenna bæði til skamms og langs tíma.
18,2% af þeim konum sem tóku þátt í rannsókninni höfðu orðið fyrir andlegu ofbeldi af hálfu maka síns, 3,3% líkamlegu og 1,3% höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Yfir 11% þátttakenda hræðist maka sinn, bæði hvað viðkomandi sagði og gerði og yfir þriðjungur(34%) segir að spenna sé í sambandi viðkomandi við maka sinn.
7% giftra kvenna og 9% kvenna í sambúð þjáist af þunglyndi og 4% eiga við átröskunarvandamál að stríða, samkvæmt rannsókninni.
Meðalaldur giftra kvenna sem tók þátt í rannsókninni er 47 ár en kvenna í sambúð 35 ár. Flestar kvennanna eru í fullu starfi og eiga eitt til þrjú börn að meðaltali.
Bloggað um fréttina
-
Marta Gunnarsdóttir Eru þetta marggiftu karlarnir? -
Axel Jóhann Axelsson Orsök eða afleiðing -
Guðmundur Ásgeirsson Hvað með karla? -
Eva Hauksdóttir En hversu hátt hlutfall karla? -
Jóhannes Ragnarsson Karlar þolendur ofbeldis af hálfu maka sinna -
Guðrún Helgadóttir enn ein goðsögnin
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. júlí 2009, Innlent Heimilisofbeldi gegn körlum óþekkt stærð
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Skráningu ofbeldismála ábótavant
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent 42% kvenna hafa sætt ofbeldi
- Fimmtudagur, 26. mars 2009, Innlent Ofbeldi gegn börnum eykst
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Margar leita til Kvennaathvarfsins
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































