Íhugar að skrifa ekki undir kjarasamning
Formaður Verkalýðsfélags Akraness, VLFA, segist ætla að íhugar sterklega að skrifa ekki undir kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga fyrr en ljóst er hvaða áhrif breytingar á vinnutilhögun starfsmanna íþróttamannvirkja og skólaliða Akraneskaupstaðar hafa á launakjör þessara hópa. Ekki komi til greina að hrófla við launum starfsmanna sem hafa undir 300 þúsund krónum á mánuði.
Á fundi bæjarráðs sl. fimmtudag voru samþykktar margvíslegar sparnaðarleiðir fyrir bæjarsjóð. Þar á meðal eru verulegar breytingar á vinnutilhögun starfsmanna íþróttamannvirkja og skólaliða sem að mati formanns VLFA munu hafa umtalsverð áhrif á launakjör þessara hópa.
Í fundargerð bæjarráðs kemur m.a. fram að frá 1. október nk. verði breyting á opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum, íþróttahússins við Vesturgötu og Bjarnalaugar. Opnunartími verði styttur um eina klukkustund virka daga og tvær klukkustundir laugardaga og sunnudaga. Lokað verði alla stórhátíðardaga og sérstaka frídaga.
„Þessi ákvörðun þýðir það að starfsmenn íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar eru að lækka frá rúmum 10% upp í rétt tæp 15%. Ég hef dæmi um einstaka starfsmenn sem eru við þetta að lækka um 365.000 til 800.000 krónur á ársgrundvelli. Það er algjörlega óviðunandi að starfsmaður sem er með 3.379.000 krónur í árslaun, eða 281.000 á mánuði skuli lækka í launum niður í 3.011.000 krónur á ársgrundvelli eða sem nemur 31.000 krónum á mánuði. Hér er um að ræða skerðingu á launum sem ekki ná 300.000 krónum á mánuði. Það er ljóst að skólaliðar grunnskólanna munu einnig verða fyrir umtalsverðri skerðingu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.
Vilhjálmur segir að grunnlaun 25 ára starfsmanns íþróttamannvirkja séu um 171.000 krónur á mánuði. Vilhjálmur fundaði í dag með Gísla S. Einarssyni bæjarstjóra Akraness og gerði alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á vinnutilhögun skólaliða og starfsmanna íþróttamannvirkja. Vilhjálmur taldi það yfirlýsta stefnu íslenskra stjórnvalda og sveitastjórna að slá skjaldborg um þá starfsmenn sem ekki ná launum sem nema 300.000 krónum á mánuði.
Vilhjálmur segir að bæjarstjóri hafi talið að ekki ætti að hrófla við launum einstaklinga sem væru með undir 300 þúsund krónum á mánuði og að æskilegt hefði verið að launanefnd sveitarfélaga hefði mótað einhverja heildstæða stefnu fyrir öll sveitarfélög í landinu sem varðar niðurskurð á launakjörum starfsmanna.
Formaður VLFA segist vilja sjá hvaða breytingar verða á launakjörum annarra starfsmanna Akraneskaupstaðar, t.d. hjá forstöðumönnum, starfsmönnum í stjórnunarstöðum, kennurum og æðstu stjórnendum bæjarins.
„Verkalýðsfélag Akraness hefur fullan skilning á því að sveitarfélög vítt og breitt þurfa að leita allra leiða til að vinna sig út úr því skelfingarástandi sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi. Hins vegar gerir Verkalýðsfélag Akraness þá kröfu að slegin verði skjaldborg um þá starfsmenn sem eru undir 300 þúsund krónum í mánaðarlaun. Það er einfaldlega lítið sem ekkert hægt að taka af slíkum launum, þau rétt duga til lágmarksframfærslu miðað við þá gengdarlausu hækkun sem orðið hefur á greiðslubyrði fólks,“ segir Vilhjálmur Birgisson.


































