Rúmlega 2.000 skjálftar í júní

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í júní 2009. stækka

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í júní 2009. Af vef Veðurstofu Íslands

Rúmlega 2000 jarðskjálftar voru staðsettir á Íslandi í júnímánuði. Um helmingur þeirra varð á Reykjanesskaga í skjálftaröðum við Krýsuvík 19. og Kleifarvatn 25. júní. Stærstu skjálftar mánaðarins urðu á þessum stöðum og var stærsti skjálftinn 4,2 við Krýsuvík þann 19.

Rúmlega 1000 skjálftar hafa verið staðsettir á Reykjanesskaganum en ekki hefur enn sem komið er unnist tími til að ljúka úrvinnslu úr skjálftaröðunum sem urðu við Krýsuvík þann 19. og Kleifarvatn þann 25. júní, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Klukkan 18:13 föstudaginn 19. júní hófst skjálftaröð við Krýsuvík með skjálfta sem var 4,2 stig. Fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið og kl. 20:37 varð annar sem var 4,1 að stærð.

Næstu daga dró úr virkninni en um kl. 16:20 fimmtudaginn 25. júní jókst hún aftur og þá austar, þ.e. nær Kleifarvatni, og kl. 17:20 varð skjálfti að stærð 4,0 með upptök við suðvesturhorn vatnsins. Annar skjálfti, sem var rúmlega 3 að stærð, varð tveimur tímum síðar.

Skjálftarnir 19. og 25. fundust mjög vel víða á höfuðborgarsvæðinu en engar tilkynningar bárust frá Suðurnesjum. Á Reykjaneshrygg mældust 34 skjálftar og voru þeir stærstu um 3 stig.

Rúmlega 330 skjálftar mældust á Suðurlandi, þar af um 200 á Kross-sprungunni. Stærsti skjálftinn var um 2 stig og varð í Ölfusinu.

Í Mýrdalsjökli mældust 28 skjálftar, flestir í vesturjöklinum. Stærsti skjálftinn var 2,2 stig. Liðlega 50 skjálftar mældust í Eyjafjallajökli en þar hófst hrina rétt fyrir miðnætti aðfaranótt mánudagsins 15. júní. Mest var virknin á mánudag og þriðjudag en svo dró úr henni. Stærsti skjálftinn var um 2 stig. Á Torfajökulssvæðinu mældust 40 skjálftar og var sá stærsti 2,4 stig.

Tæplega 90 skjálftar og ísskjálftar mældust í Vatnajökli öllum. Stærsti skjálftinn var 2,5 stig og varð við Hamarinn þann 16. júní. Tæplega 30 ísskjálftar mældust í Skeiðarárjökli. Flestir urðu þeir á tímabilinu frá því snemma morguns þann 23. og fram undir hádegi þann 25.

Á svæðinu norðan Vatnajökuls mældust tæplega 120 skjálftar. Mesta virknin var norðan Upptyppinga og Herðubreiðar. Stærsti skjálftinn var rúmlega tvö stig og varð norðan Herðubreiðar.

Á og úti fyrir Norðurlandi mældust 320 skjálftar. Mesta virknin var norðan og austan Grímseyjar og í Öxarfirði. Stærsti skjálftinn varð um 40 km norður af Grímsey þann 7. júní og var hann tæplega 4 stig
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Bjarnason alþingismaður

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »
Í Fossvogskirkjugarði.

Þarf meiri tíma til að finna lausn

10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GLUGGA,HURÐASMÍÐI OG MÓTAUPPSLÁTTUR.
Smíða glugga,hurðir og opnanlegaglugga í gömul og ný hús:Allt unnið úr fyrstaflo...
Hjólbarðar til sölu
Er með fjögur Goodyear dekk gróft munstur, stærð 33x12.5R17LT ekin ca 12-15þús k...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...