Hvetja þingmenn til að fella Icesave-frumvarp
Talsmaður hollenskra innistæðueigenda hvetur þingmenn til að fella frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninga við Breta og Hollendinga.
Í bréfi sem Joost de Groot, talsmaður hollenskra innistæðueigenda sendi öllum þingmönnum síðdegis í gær, segir að fella verði frumvarpið og semja að nýju.
Hollendingarnir segja að Íslendingar muni aldrei ráða við það lán sem samkomulagið við Breta og Hollendinga um Icesave felur í sér. Þá sé aðeins tekið á hluta vandans í samkomulaginu og Íslendingar muni standa í þrefi um ókomin ár vegna þess sem út af stendur og ef til vill aldrei ná sér á strik vegna þess og þeirra kjara sem samið var um í Icesave-samkomulaginu.
Hollendingarnir segja í bréfinu til íslensku þingmannanna að Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki verði að koma að nýrri samningsgerð, enda beri þeir sína ábyrgð á málinu.
Hollendingarnir segja að í stað láns upp á 3,6 milljarða evra á 5,5% vöxtum verði að semja við alla kröfuhafa. Nýtt lán gæti hljóðað upp á 7,3 milljarða evra en vaxtastigið verði að endurskoða. Vextir eigi að vera 1%.
Með slíkum samningi komist Íslendingar hjá málaferlum og geti einbeitt sér að endurreisn í stað þess að takast á við aðrar þjóðir í dómsölum. Þá fái Íslendingar full yfirráð yfir eignum Landsbankans og geti hámarkað verðmæti eignanna. Síðast en ekki síst telja Hollendingarnir að kostnaður Íslendinga af slíku láni verði minni þegar upp verður staðið, en af núgildandi samkomulagi, þrátt fyrir tvöfalt hærri lánsfjárhæð.
Í bréfinu til íslensku þingmannanna segir að verði frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave ekki fellt á Alþingi og sest að samningaborði að nýju, sé fyrirsjáanleg hrina málaferla gegn Íslendingum. Ekki aðeins verði Fjármálaeftirlitið íslenska dregið til ábyrgðar, heldur verði Hollendingar að fara með málið gegn Íslandi til EFTA. Ekki verði við það unað að hollenskir sparifjáreigendur sem áttu fé í gamla Landsbankanum sæti öðrum kjörum en þeir íslensku.
Hollendingarnir telja víst að aðrir innistæðueigendur í sömu sporum leiti líka réttar síns.
Því sé nauðsynlegt að hefja nýjar samningaviðræður með þátttöku æðstu ráðamanna en ekki embættismanna, líkt og gert var þegar gengið var frá samkomulagi við Breta og Hollendinga.
Þannig fáist mun betri niðurstaða fyrir íslensku þjóðina, auk þess sem Íslendingar sýni svo ekki verður um villst, að þeir axli ábyrgð.
Bloggað um fréttina
-
Jóhann Pétur Pétursson Frábær samingur.... -
Skúli Guðbjarnarson Neyðarlögin mistök -
Magnús Helgi Björgvinsson Jam er þetta nú alveg heiðarlegt hjá þeim? -
Gunnar Gunnarsson Hollenzkir innstæðueigendur veita ráð -
Ólafur Eiríksson Það var einmitt það já. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hollendingar sjá málið í réttu ljósi.
Innlent »
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Vilja óháðan dómstól
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Hollensk stjórnvöld afneita afskiptum
- Sunnudagur, 18. október 2009, Innlent Lengra varð ekki komist
- Föstudagur, 27. nóvember 2009, Innlent Ræddu um Icesave fram á nótt
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Kæra vegna taps á Icesave
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli

































