Lengsta hjólakeppni ársins
Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is
Útivist af öllu tagi virðist hafa gripið Íslendinga heljartökum þessi misserin, þar á meðal hjólreiðar.
Síðustu vikur hefur hópur manna einmitt æft fyrir lengstu hjólreiðakeppni ársins sem fram fer í dag, en hjólað verður á milli Reykjavíkur og Akureyrar í tilefni af 100 ára afmæli Landsmóts UMFÍ.
Að sögn Hákonar Hrafns Sigurðssonar hjá hjólreiðanefnd ÍSÍ hafa vinsældir hjólreiðakeppna rokið upp á árinu. Sem dæmi má nefna hina árlegu Blálónsþraut, frá Hafnarfirði í Bláa lónið. Í fyrra voru keppendur 130 en í ár kepptu 300 manns.
„Það virðist vera einhver svakaleg sprenging í þessu núna í ár,“ segir Hákon. Keppnin þar sem hjólað verður milli Reykjavíkur og Akureyrar fer þannig fram að þátttakendur keppa í tveggja manna liðum sem skiptast á að hjóla, enda er leiðin löng, um 430 kílómetrar. Keppendur þurfa hinsvegar ekki að vera neinir atvinnuhjólakappar.
Leiðin sem hjóluð verður í keppninni liggur um þjóðveg 1 um Hvalfjörð. Ekki verður lokað fyrir aðra umferð og því ástæða til að biðja bílstjóra um að vera vakandi. Keppnin hefst kl. 7 að morgni miðvikudagsins og er áætlað að liðin verði komin í mark kl. 19.30 til 21.30 í kvöld á Akureyri.
Innlent »
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Hjólakappar komnir í Borgarnes
- Laugardagur, 18. apríl 2009, Innlent Garpar á öllum aldri
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Útlit fyrir minni halla hjá Akureyrarbæ
- Laugardagur, 30. maí 2009, Innlent Fyrstu tjaldferðalangarnir farnir af stað
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Innlent Fyrsta æfingin á nýja vellinum
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































