Mjólkurlítrinn hækkar um 10 krónur 1. ágúst

mbl.is/Ómar

Heildsöluverð nýmjólkur hækkar um rúmar átta krónur fyrsta ágúst næstkomandi eða um 9%, samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar búvara. Verð mjólkurvara hækkar að meðaltali um 3,47% um næstu mánaðamót.

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, taki breytingum 1. ágúst n.k.

Verð mjólkurvara mun taka mismiklum breytingum en hækkar að meðaltali um 3,47%.

Heildsöluverð nýmjólkur mun hækka um rúmar 8 krónur hver lítri eða 9%. Minni verðhækkun verður á léttmjólk eða um 4,6%. Heildsöluverð á rjóma mun lækka um 0,7%. Heildsöluverð á mjólkurdufti til iðnaðar hækkar um 13,5%.

Verðlagsnefndin telur að við þessa breytingu megi gera ráð fyrir einn lítri af nýmjólk hækki í smásölu um tíu krónur, en álagning smásala á mjólkurvörum er frjáls.

Ástæður þessara verðhækkana eru einkum hækkanir á aðföngum og öðrum rekstrarkostnaði í mjólkuriðnaði. Verð til bænda hækkar ekki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert